fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Kolbeinn orðaður við Balikesirspor

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 21. janúar 2021 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Greint er frá því í fjölmiðlum í Tyrklandi í dag að Kolbeinn Sigþórsson eigi í viðræðum við Balikesirspor í næst efstu deild í Tyrklandi.

433.is greindi frá því í gær að lið í næst efstu deild í Tyrklandi hefði áhuga á Kolbeini, um er að ræða Balikesirspor.

Balikesirspor situr í 15 sæti næst efstu deildar og hefur lítið sem ekkert gengið hjá félaginu á þessu tímabili.

Kolbeinn er markahæsti leikmaður í sögu íslenska landsliðsins er án félags. Kolbeinn og AIK komust að samkomulagi um að rifta samningi hans við sænska félagið fyrir áramót.

Lítið hefur heyrst síðan þá og óvíst er hvaða skref þessi öflugi framherji tekur á ferli sínum, Kolbeinn er þrítugur og ætti að geta kreist fram nokkur góð ár á ferli sínum. Kolbeinn kom við sögu í 18 leikjum með AIK á síðustu leiktíð en mistókst að skora. Í heildina lék hann 35 deildarleiki fyrir sænska félagið og skoraði í þeim þrjú mörk.

Framherjinn knái hafði fyrir dvöl sína hjá AIK lítið sem ekkert spilað fótbolta í tæp þrjú ár, eftir Evrópumótið í Frakklandi árið 2016 glímdi Kolbeinn við mikið af meiðslum. Hann var síðan settur í frystikistuna hjá Nantes í Frakklandi og fékk ekkert að spila.

Hjá AIK tókst honum ekki að finna sitt besta form, framherjinn sem er alltaf líklegur til þess að skora fyrir íslenska landsliðið átti í vandræðum með að skora í Svíþjóð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði