Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, segir að sér sé létt að vera hættur að starfa sem knattspyrnustjóri félagsins nú þegar að hann sjái spilamennsku Liverpool.
„Mér leið alltaf þannig að við þyrftum að sigra Liverpool til þess að vinna titla,“ sagði Ferguson á góðgerðarsamkomu um daginn.
Manchester United, vann þrettán Englandsmeistaratitla undir stjórn Sir Alex en eftir brottför hans hefur liðið aldrei náð sömu hæðum. Á sama tíma hafa erkifjendurnir í Liverpool klifið í hæstu hæðir, unnið Meistaradeild Evrópu og urðu Englandsmeistarar á síðasta tímabili í fyrsta skipti í þrjátíu ár.
„Þegar að ég horfi á frammistöðu Liverpool undanfarin tímabil hugsa ég með sjálfum mér ‘guð sé lof að ég sé hættur,“ sagði Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United.
Liverpool tekur á móti Manchester United í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar á morgun.