Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Barcelona er vongóður um að Georginio Wijnaldum, leikmaður Liverpool og Memphis Depay, leikmaður Lyon, verði orðnir leikmenn Barcelona næsta sumar. El Mundo Deportivo greindi frá.
Báðir leikmennirnir verða samningslausir í sumar og lítið hefur þokast í viðræðum þeirra við sín núverandi félög.
Þá er einnig talið líklegt að Eric Garcia, leikmaður Manchester City, gangi til liðs við Barcelona. Sú félagsskipti gætu átt sér stað í þessum mánuði.
Koeman, hefur reynslu af Wijnaldum og Depay sem leikmönnum, en þeir störfuðu allir saman hjá hollenska landsliðinu.
Sky Sports, hefur heimildir fyrir því að viðræður Wijnaldum og Liverpool hafi náð pattstöðu. Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool hefur miklar mætur á leikmanninum og vill ekki missa hann frá félaginu.