fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Gummi Ben um málefni Arnars í Danmörku: „Á ég að trúa því að KSÍ hafi gefið grænt ljós á þetta?“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 19. maí 2021 11:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt fréttum í Danmörku var Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari Íslands á dögunum í viðræðum við OB um að taka við þjálfun liðsins. Arnar er að auki yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ.

Frá þessu var greint í dönskum fjölmiðlum í dag. Þar segir að Arnar hafi komið til greina sem þjálfari liðsins og viðræður hafi átt sér stað.

Í fréttum í Danmörku segir að það hafi komið til tals að Arnar myndi stýra bæði OB og íslenska landsliðinu en Jens Gustafsson frá Svíþjóð er einnig sagður hafa verið í viðræðum um starfið. Arnar Þór gerðist landsliðsþjálfari undir lok síðasta árs en hann ásamt Eiði Smára Guðjohnsen og Lars Lagerback velja í dag hóp sinn fyrir komandi æfingaleiki.

Guðmundur Benediktsson íþróttafréttamaður hjá Sýn skrifar um málið á Twitter og er hugsi yfir málinu. „ Landsliðsþjálfari Íslands, yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ og í viðræðum við OB í Danmörku um að þjálfa liðið?,“ skrifar Guðmundur á Twitter.

Hann kastar svo fram þeirri spurningu hvort KSÍ hafi gefið grænt ljós á viðræðurnar. „Á ég að trúa því að KSÍ hafi gefið grænt ljós á þetta?,“ skrifar Guðmundur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Í gær

Southgate vill bara ræða við stóru strákana

Southgate vill bara ræða við stóru strákana
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims