fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
433Sport

Íslensk stúlka sem fór á hótel enska landsliðsins opnar sig – „Þetta eru frábærir drengir“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 7. september 2020 17:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ein af stúlkunum sem fór upp á hótel að hitta Mason Greenwood og Phil Foden hefur opnað sig um málið. Tvær íslenskar stúlkur heimsóttu ensku landsliðsmennina á hótel í gær, voru þeir reknir úr enska landsliðinu í dag vegna atviksins.’

Leikmennirnir gerðust sekir um brot á sóttvarnarreglum eftir að tvær íslenskar konur heimsóttu hótel þeirra í gær. Konurnar fóru á Hótel Sögu þar sem enska landsliðið dvaldi, fyrst um sinn var aðeins önnur konan að fara að hitta Mason Greenwood. Henni var skutlað af vinkonu sinni sem snéri við þegar hún var á heimleið þar sem leikmaðurinn Phil Foden hafði áhuga á að hitta hana.

Konurnar fóru ekki inn á herbergi leikmannanna heldur var búið að bóka tvö önnur herbergi þar sem þeir gátu hitt íslensku konurnar ,,Ég vil vera heiðarleg með þetta allt saman, ég sendi ekki neitt á fjölmiðla,“ skrifar stúlkan á Instagram síðu sína í dag. Hún ræðir svo málið ítarlega við Daily Mail.

,,Mér líður illa með þetta og ég vildi ekki setja þá í þessa stöðu, við vissum ekki betur og vissum ekki að þeir væru í sóttkví. Við hefðum ekki farið að hitta þá ef við hefðum vitað það. Við vissum ekki hver Phil væri, við vissum ekki að Mason væri leikmaður Manchester United,“ segir stúlkan við Daily Mail.

„Við höfum ekki rætt við þá eftir atvikið. Þetta var gott kvöld, við vorum öll fjögur saman að kynnast. Þeir voru ljúfir drengir, mjög ljúfir. Þeir eru ungir, við erum öll ung og gerum mistök. Þeir komu vel fram við okkur, miklir herramenn.“

Meira:
Enskir landsliðsmenn brutu reglur hér á landi í gær – Fengu íslenskar stúlkur upp á hótel

Stúlkan sem fór á Hótel Sögu segist ekki bera ábyrgð á þeim myndböndum sem eru í umferð. „Ég tók ekki þessar myndir og þessi myndbönd, ég er ekki stúlkan í myndbandinu sem sést tala við þá. Það er önnur stelpa,“ segir stúlkan og segir svo. „Ég vissi ekki að strákarnir væru í sóttkví.“

,,Þeir eiga þetta ekki skilið í eina sekúndu, þetta eru frábærir drengir og góðir knattspyrnumenn. Það var ekki ætlun mín að þetta færi svona, ég segi það aftur. Ég sendi ekkert á fjölmiðla og hefði aldrei gert það.“

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Chelsea hafnaði tilboði frá Arsenal í markvörð félagsins

Chelsea hafnaði tilboði frá Arsenal í markvörð félagsins
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Skellir fram mjög óvæntu nafni sem hann vill sjá í næsta landsliðshópi Arnars – „Þú skalt segja mér þá hverjir eru að gera betur“

Skellir fram mjög óvæntu nafni sem hann vill sjá í næsta landsliðshópi Arnars – „Þú skalt segja mér þá hverjir eru að gera betur“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Southampton gerir stólpagrín á TikTok eftir ummæli frá leikmanni City um helgina

Southampton gerir stólpagrín á TikTok eftir ummæli frá leikmanni City um helgina
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Allir starfsmenn Tottenham fá frían miða á úrslitaleikinn en starfsmenn United ekki neitt

Allir starfsmenn Tottenham fá frían miða á úrslitaleikinn en starfsmenn United ekki neitt
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Skiptar skoðanir á því hvort Greenwood eigi afturkvæmt en tvö félög kanna möguleikann á að fá hann

Skiptar skoðanir á því hvort Greenwood eigi afturkvæmt en tvö félög kanna möguleikann á að fá hann
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

United sættir sig við rosalegt fjárhagslegt tap

United sættir sig við rosalegt fjárhagslegt tap
433Sport
Í gær

Real Madrid með óvænt nafn á blaði – Leikmaður Liverpool gæti fyllt skarð hans

Real Madrid með óvænt nafn á blaði – Leikmaður Liverpool gæti fyllt skarð hans
433Sport
Í gær

Umdeildi fjölmiðlamaðurinn baunar á stuðningsmenn Liverpool og segir þá aumkunarverða – „Takið til í hausnum á ykkur, trúðar“

Umdeildi fjölmiðlamaðurinn baunar á stuðningsmenn Liverpool og segir þá aumkunarverða – „Takið til í hausnum á ykkur, trúðar“