fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
433Sport

Íslendingar vilja ekki tengja sig við ofbeldið sem leikmaður Liverpool varð fyrir í gær

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 25. september 2020 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Neco Williams 19 ára varnarmaður Liverpool fékk mikið af skítkasti frá stuðningsmönnum Liverpool eftir 7-2 sigur á Lincoln í enska deildarbikarnum í gær. Skítkastið var slíkt að Williams gerði allt heimasvæði sitt á Twitter svart.

Þessi 19 ára piltur er mikið efni en stuðningsmenn félagsins voru margir óhressir með frammistöðu hans í fyrsta marki Lincoln þar sem hann missti boltann.

Stuðningsmenn Liverpool á Íslandi vilja þó ekki láta kenna sig við svona framkomu og tóku sterka afstöðu sem Williams í dag eftir að fréttir af þessu ofbeldi á Twitter komu fram.

Af Facebook síðunni Stuðningsmenn Liverpool F.C. á Íslandi
Orðlaus!! 🤬🤬
Eftir algjöra veislu í gærkvöldi þar sem okkar lið fór hamförum og setti SJÖ mörk sáu þó nokkuð margir stríðsmenn lyklaborðins sig knúna til að vopna sig upp og ráðast til atlögu á Twitter, fórnarlambið var 19 ára Neco Williams.
Þetta gekk svo fram af greyið drengnum að hann gerði prófílinn sinn svartan. Svona stuðningsmenn höfum við nákvæmlega ekkert við að gera, eiga ekki skilið að tengja nafnið sitt við félagið og ættu að leita sér hjálpar því ef maður finnur þörf fyrir að ráðast að ungum strák sem spilaði í stórsigri gegn neðri deildarliði þá er eitthvað mikið að.
Hvað er að?????

Orðlaus!! 🤬🤬
Eftir algjöra veislu í gærkvöldi þar sem okkar lið fór hamförum og setti SJÖ mörk sáu þó nokkuð margir…

Posted by Stuðningsmenn Liverpool F.C. á Íslandi on Friday, 25 September 2020

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Meiri líkur á að Zidane fái kallið frekar en Pogba

Meiri líkur á að Zidane fái kallið frekar en Pogba
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Segir að Ronaldo sé ekkert að hugsa um mörkin

Segir að Ronaldo sé ekkert að hugsa um mörkin
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Kristján varpar fram kenningu um aðstoðarmanninn á Hlíðarenda – „Það er byrjað að brýna hnífana og það á bara eftir að dúndra þeim í bakið á Hermanni“

Kristján varpar fram kenningu um aðstoðarmanninn á Hlíðarenda – „Það er byrjað að brýna hnífana og það á bara eftir að dúndra þeim í bakið á Hermanni“
433Sport
Í gær

England: United vann sterkan sigur á Newcastle

England: United vann sterkan sigur á Newcastle
433Sport
Í gær

Dómarinn vonaðist eftir því að Ronaldo myndi klúðra vítinu – ,,Augljóst að ég gerði mistök“

Dómarinn vonaðist eftir því að Ronaldo myndi klúðra vítinu – ,,Augljóst að ég gerði mistök“
433Sport
Í gær

,,Ég vissi af pressunni þegar ég kom til félagsins“

,,Ég vissi af pressunni þegar ég kom til félagsins“