fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Gummi Ben glottir yfir fréttum frá Hollandi

Sóley Guðmundsdóttir
Fimmtudaginn 24. september 2020 21:30

Mynd/Hringbraut Gummi Ben

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísak Bergmann Jóhannesson leikmaður Norrköping í Svíþjóð hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með liðinu. Ísak, sem er aðeins 17 ára, hefur leikið með Norrköping frá 15 ára aldri.

Ísak hefur vakið athygli stærri liða í Hollandi. Guðmundur Benediktsson íþróttafréttamaður vakti athygli á því á Twitter að Feyenoord, sem leikur í efstu deild í Hollandi, hefur áhuga á Skagamanninum unga.

Á dögunum var rætt um að stórlið Juventus hefði áhuga á því að fá Ísak í sínar raðir. Þessi ungi leikmaður lék sinn fyrsta U21 landsleik á dögunum.

Það sem Gummi Ben vekur helst athygli á er kaupverðið sem Feyenoord gerir ráð fyrir að borga fyrir Ísak. Ein milljón evra telst heldur lágt verð í knattspyrnuheiminum fyrir einn efnilegasta leikmann Norðurlanda.

Þrátt fyrir ungan aldur spilar Ísak með aðalliði Norrköping. Hann hefur spilað 13 deildarleiki á tímabilinu og skorað í þeim tvö mörk.

„Hollendingar halda að Ísak sé á leið til Feyenoord fyrir 1m.evra og æfi bara með varaliðinu fyrst um sinn.,“ skrifar Guðmundur á Twitter.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Erling Haaland áfram meiddur

Erling Haaland áfram meiddur
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert