fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Viktor Karl lætur til sín taka á vellinum og í viðskiptum – „Núna finn ég fyrir trausti“

Sóley Guðmundsdóttir
Sunnudaginn 21. júní 2020 08:00

valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viktor Karl Einarsson, leikmaður Breiðabliks í Pepsi Max-deild karla, var 16 ára þegar hann fór út í atvinnumennsku. Hann segir upplifunina hafa verið mjög góða. „Mamma mín flutti með mér ásamt Alexander Helga, liðsfélaga mínum í Breiðabliki. Hún bjó með okkur fyrstu sex mánuðina. Þegar ég lít til baka þá held ég að það hafi verið mjög mikilvægt, þó að ég hafi ekki fattað það þá. Ég er mjög þakklátur fyrir það. Þetta var mjög góður tími og mér leið mjög vel í Hollandi í þessi fimm ár.“

Minna áfall en maður hefði haldið
Viktor varð fyrir því áfalli að slíta krossband árið 2014 í ferð með undir 19 ára landsliði Íslands. Hann segir að áfallið hafi ekki verið mikið andlega. „Ég áttaði mig ekkert mikið á því að ég hefði slitið krossband. Um leið og ég kom heim til Hollands úr landsliðsferðinni tók við endurhæfingarferli. Ég byrjaði strax að æfa með sjúkraþjálfurum og ég fékk engan tíma til að melta þetta. Þetta tók átta mánuði og ég varð auðvitað eftir á líkamlega. Ég tel mig hafa höndlað þetta vel andlega og þetta hafði minni áhrif en maður hefði haldið. Ég byrjaði að spila sex og hálfum mánuði eftir aðgerð. Það er held ég bara mettími, þannig séð,“ segir Viktor.

valli

Fékk nóg af varaliðinu
Viktor spilaði í þrjú ár með varaliði AZ Alkmar. Hann fékk fá tækifæri með aðalliðinu og kaus því að færa sig um set. Viktor fór í lið IFK Värnamo sem var í fallbaráttu í næstefstu deild Svíþjóðar. „Þeir voru með 5 stig eftir 15 leiki. Mér var sagt að það væri að fara í gang ákveðið verkefni. Það var að koma inn fullt af leikmönnum og þeir ætluðu að gera allt til þess að bjarga sér frá falli. Þetta breytti öllu hjá liðinu. Á seinni hluta tímabilsins fengum við 27 stig, sem var næstmest af öllum liðum. Það gekk mjög vel í Svíþjóð. Ég byrjaði alla leiki og spilaði alla leiki sem voru í boði. Þetta var rosalega gaman og ég myndi segja að þetta hafi verið skemmtilegasta tímabilið mitt í atvinnumennsku.“ Viktor samdi við IFK Värnamo á miðju tímabili. Liðið náði ekki að bjarga sér frá falli. Ekki voru til peningar til að halda í þá leikmenn sem komu nýir til liðsins og þurfti Viktor því að finna sér nýtt lið.

Gott að koma heim
Viktor var ekki lengi án liðs. Þrjú íslensk lið sýndu honum áhuga. Eitt þeirra var uppeldisfélag hans Breiðablik. Tilfinningin að koma heim var mjög góð, að sögn Viktors. „Ég bjóst við því að þetta yrði eitthvert sjokk en þetta gerðist svo hratt. Ég skrifaði undir og byrjaði strax að æfa og spila og undirbúningstímabilið gekk vel. Sumir tala um að það sé skellur að koma heim, en mér leið mjög vel með þetta.“ Viktor var inn og út úr byrjunarliði Blika á síðustu leiktíð. Hann kom við sögu í 14 leikjum og skoraði eitt mark. Í ár er einn leikur búinn í Pepsi Max-deildinni. Viktor byrjaði leikinn og skoraði fyrsta mark Blika í 3-0 sigri á Gróttu. Tímabilið í fyrra var mjög þroskandi fyrir Viktor og segist hann finna fyrir meiri ábyrgð í ár en í fyrra. „Andrúmsloftið í fullorðinsbolta eins og í Pepsi-deildinni er öðruvísi en í unglingaliði og ég held að það hafi þroskað mig gríðarlega mikið. Núna finn ég fyrir trausti bæði frá leikmönnum og þjálfurum.“

valli

Ánægður með nýjar áherslur
„Við erum með frábæran og breiðan hóp. Ég veit að ég get talað fyrir allan hópinn þegar ég segi að við séum mjög vel gíraðir inn á planið sem Óskar, Dóri og Gulli komu með.“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, Halldór Árnason og Gunnleifur Gunnleifsson eru nýtt þjálfarateymi Breiðabliks. Þeir koma með nýjar áherslur inn í liðið sem leikmennirnir hafa tekið vel í. „Við erum að spila aðeins öðruvísi fótbolta en við höfum gert. Blikar hafa alltaf verið svokallað „possession“ lið, en það er til dæmis nýtt fyrir okkur að spila með markmanninn svona hátt uppi. Við viljum fjölga á miðjunni og spila í gegnum hana. Þegar við missum boltann viljum við pressa liðin hátt á vellinum. Okkur brá svolítið þegar þeir vildu fá Anton Ara markmann upp á miðju, en það hefur bara virkað ágætlega,“ segir Viktor Karl, yfirvegaður.

„Hann er æðislegur“
Eins og fyrr segir er Óskar á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari Blika. Viktor lýkur lofsorði á hann. „Hann gæti verið svolítið misskilinn ef maður þekkir hann ekki, en hann er bara þvílíkur meistari. Það er mjög auðvelt að ræða við hann einn á einn. Hann er líka mjög sanngjarn þjálfari. Hann segir þér hvenær þú átt að gera eitthvað betur og lætur þig vita þegar þú ert að gera eitthvað vel. Þú finnur fyrir trausti frá honum þó svo að hann sé ekki alltaf að segja það við þig.“ Viktor segir að hugurinn leiti út, þrátt fyrir að honum líði mjög vel í Breiðabliki og hann einbeiti sér að núinu. Maður vill auðvitað spila á eins háu stigi og hægt er. Ég er með skýr markmið, en eins og staðan er núna líður mér mjög vel í Breiðabliki.“

Fatalína byrjaði sem skólaverkefni
Viktor og kærasta hans, Jónína Þórdís Karlsdóttir, eiga fatamerkið BÖKK, ásamt Rúrik Gíslasyni knattspyrnumanni. „Þetta byrjaði sem skólaverkefni hjá kærustunni minni í Verzlunarskóla Íslands. Þegar ég kom heim var ég að hjálpa til við að skutla pökkum. Þetta þróaðist svo út í það að ég keypti mig inn í fyrirtækið.“ Í fatalínunni er hettupeysa, stuttermabolur, húfa og belti sem var upphafið að þessu. Rúrik er frændi Viktors. „Við fengum Rúrik til að sitja fyrir á mynd fyrir Instagram-síðu fyrirtækisins, sem varð til þess að hann keypti sig inn í fyrirtækið.“ BÖKK var stofnað opinberlega á síðasta ári. Með haustinu er meira væntanlegt frá þessu nýja fatamerki. Viktor er nýútskrifaður úr menntaskóla og stefnir á frekara nám. „Ég var að skrá mig í háskóla í haust. Ég skráði mig í fullt af dóti, en hef áhuga á viðskiptum og ég hugsa að ég taki eitthvað svoleiðis.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ólafur Karl Finsen orðinn leikmaður Vals

Ólafur Karl Finsen orðinn leikmaður Vals
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Skilaboð unga drengsins segir allt um hörmungarnar í vetur

Skilaboð unga drengsins segir allt um hörmungarnar í vetur