fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
433Sport

Til skoðunar á Englandi að banna íþróttaviðburði í tvo mánuði: COVID-19 veiran ógnar því að Liverpool verði meistari

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 28. febrúar 2020 13:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirvöld á Bretlandi eru uggandi vegna COVID-19 veirunnar sem nú er að breiða sér hratt út um landið, þessi veira er að greinast víða í Evrópu þessa dagana og búist er við henni á Íslandi næstu daga.

Samkvæmt Telegraph óttast yfirvöld fjölmenna viðburði og er það til skoðunar að banna íþróttaviðburði næstu tvo mánuðina, til að reyna að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu á veirunni. Tugir þúsunda mæta á hvern leik í ensku úrvaldeildinni, smithættan þar er því mikil.

Þá yrði hætt við alla leiki í deildinni og segir Telegraph að ekki sé öruggt að Liverpool verði því enskur meistari.

Engar reglur eru til um slík mál, ef ekki væri hægt að klára deildina. Liverpool hefur 22 stiga forskot þegar 11 leikir eru eftir.

Telegraph segir að liðin sem eru í fallsæti gætu þannig sloppið við fall og að enginn sigurvegari yrði á þessari leiktíð, deildin færi svo aftur af stað næsta haust, á núlli.

Liverpool hefur ekki orðið enskur meistari í 30 ár og nú þegar allt er svo gott sem í höfn gæti COVID-19 veiran komið í veg fyrir sigur liðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Hrun Liverpool er áhugavert – Svona var staðan í lok janúar þegar Klopp kynnti áform sín

Hrun Liverpool er áhugavert – Svona var staðan í lok janúar þegar Klopp kynnti áform sín
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið
433Sport
Í gær

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik
433Sport
Í gær

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton