fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
433Sport

Þýskaland: Alfreð með stoðsendingu í sigri – Bayern vann Köln

Aron Guðmundsson
Laugardaginn 31. október 2020 16:25

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alfreð Finnbogason kom inn á sem varamaður á 75. mínútu í leik Augsburg og Mainz í þýsku úrvalsdeildinni í dag og lagði upp annað mark liðsins á 80. mínútu í 3-1 sigri. Þá vann Bayern Munchen 1-2 sigur á Köln.

Augsburg tók á móti Mainz í dag. Fyrsta mark leiksins kom á 40. mínútu og þar var að verki Ruben Vargas.Karim Onisiwo jafnaði metin fyrir Mainz með marki á 64. mínútu.

Á 75. mínútu kom Alfreð Finnbogason inn á sem varamaður. Fimm mínútum seinna var hann búinn að leggja upp annað mark Augsburg í leiknum, André Hahn skoraði mark Augsburg. Hann var síðan aftur á ferðinni er hann innsiglaði 3-1 sigur Augsburg með marki á 91. mínútu. Augsburg er eftir leikinn í 4. sæti deildarinnar með 10 stig eftir 6 leiki.

Fleiri leikir fóru fram á sama tíma í deildinni. Bayern Munchen heimsótti Köln og fór með 1-2 sigur af hólmi. Thomas Mulller kom Bayern yfir með marki úr vítaspyrnu á 13. mínútu. Serge Gnabry innsiglaði skoraði seinna mark Bayern á 45. mínútu. Dominick Drexler minnkaði muninn fyrir Köln en nær komust heimamenn ekki. Bayern er eftir leikinn í 2. sæti deildarinnar með 15 stig.

Þá vann Borussia Dortmund 0-2 útisigur á Arminia Bielefeld. Varnarmaðurinn Mats Hummels, skoraði bæði mörk Dortmund á 53. og 71. mínútu. Dortmund er eftir leikinn í 2. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 5 leiki.

Augsburg 3 – 1 Mainz 
1-0 Ruben Vargas (’40)
1-1 Karim Onisiwo (’64)
2-1 André Hahn (’80)
3-1 André Hahn (’90+1)

Köln 1 – 2 Bayern Munchen 
0-1 Thomas Muller (’13, víti)
0-2 Serge Gnabry (’45+1)
1-2 Dominick Drexler (’82)

Arminia Bielefeld 0 – 2 Borussia Dortmund 
0-1 Mats Hummels (’53)
0-2 Mats Hummels (’71)

Eintracht Frankfurt 1 – 1 Werder Bremen 
0-1 Josh Sargent (’51)
1-1 André Silva (’65)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Þurfa að borga 172 milljónir punda til að forðast fall

Þurfa að borga 172 milljónir punda til að forðast fall
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Kyle Walker í Burnley

Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rashford missir númerið í Manchester

Rashford missir númerið í Manchester
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Einstök fjölskyldustemning í kringum íslenska liðið – „Ekki bara nánasta fjölskylda“

Einstök fjölskyldustemning í kringum íslenska liðið – „Ekki bara nánasta fjölskylda“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ætlar að halda ‘leynipartí’ þar sem engir símar verða leyfðir

Ætlar að halda ‘leynipartí’ þar sem engir símar verða leyfðir
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

KSÍ vísar gagnrýnisröddum á bug – „Allt væl um þetta, okkur gæti ekki staðið meira á sama“

KSÍ vísar gagnrýnisröddum á bug – „Allt væl um þetta, okkur gæti ekki staðið meira á sama“