Lucien Favre telur að allar sögurnar um Manchester United séu ástæða þess að Jadon Sancho kantmaður liðsins er ekki í sínu besta formi.
Sancho hafði vonast efitr því að fara til United í sumar en félögin komust ekki að samkomulagi um kaupverðið á enska landsliðsmanninum.
Dortmund vildi 108 milljónir punda en United taldi það alltof hátt verð nú þegar kórónuveiran ríður yfir heiminn og tekjufall hefur orðið hjá félögum.
„Allir leikmenn eiga slæma kafla, það var mikið talað um Sancho í sumar og svona hlutir hafa áhrif á leikmenn,“ segir Favre.
„Það er enginn leikmaður alltaf í sínu besta formi allt árið, það er ómögulegt.“