Söngkonan Alexandra Burke er hætt með knattspyrnumanninum Angus MacDonald, sem leikur í næst efstu deild Englands með Rotherham United. Alexandra hefur nú eytt öllum myndunum sem hún var með á samfélagsmiðlinum Instagram af þeim saman.
„Alexandra og Angus eru bæði mjög upptekin og þau hafa ekki náð að hittast mikið í útgöngubanninu,“ sagði heimildarmaður í samtali við DailyMail um málið. „Þau ákváðu að slíta þessu alveg og fyrir Alexöndru þýddi það að eyða öllum myndunum af þeim saman á Instagram.“
Alexandra og Angus staðfestu að þau væru í sambandi þegar þau sáust saman í júlí á síðasta ári. Það var einungis nokkrum vikum eftir að hún hafði hætt með fyrrum unnusta sínum Josh Ginnely. Fyrsta ár hennar og Angus saman var afar erfitt þar sem knattspyrnumaðurinn greindist með krabbamein stuttu eftir að þau byrjuðu saman. Angus glímdi við krabbameinið og náði að sigrast á því í desember sama ár.
Þrátt fyrir að Angus hafi sigrast á krabbameininu eyddu þau ekki miklum tíma saman og í mars á þessu ári deildi Alexandra mynd af sér með frægum rappara, Stormzy. Aðdáendur hennar hugsuðu með sér að hún væri byrjuð að rugla saman reitum með rapparanum. „Þau virðast vera mjög náin,“ sagði einn aðdáandi í athugasemdum undir myndinni.