Jón Daði Böðvarsson lék 72 mínútur með Millwall í kvöld sem mætti Leeds United á útivelli.
Það er óhætt að segja að leikmenn Millwall muni ekki sofa vel í kvöld eftir að hafa komist í 2-0 á Elland Road.
Í seinni hálfleik tapaði liðið niður þeirri forystu en á 18 mínútu skoraði Leeds heil þrjú mörk.
Patrick Bamford skoraði tvö fyrir heimamenn og Pablo Hernandez gerði eitt í rosalegri endurkomu.
Leeds er komið á toppinn á ný en Millwall situr nú í 9. sæti deildarinnar.