Zlatan Ibrahimovic, framherji LA Galaxy nýtur lífsins í MLS deildinni þar sem hann raðar inn mörkum.
Zlatan hlóð í þrennu í nótt í 7-2 sigri Galaxy á Sporting KC.
Zlatan klikkaði á vítaspyrnu en nýtti frákastið í fyrsta markinu en hin tvö voru afar glæsileg.
,,Ég er sá besti í deildinni,“ sagði Zlatan eftir leik og hann lýgur líklega engu þar.
Mörkin má sjá hér að neðan.