Gylfi Þór Sigurðsson lék með íslenska landsliðinu í kvöld sem mætti Albaníu í undankeppni EM.
Gylfi var besti maður Íslands í kvöld en strákarnir töpuðu 4-2 í mikilvægum leik og er staðan ekki frábær í riðlinum.
Gylfi ræddi við Vísi eftir leikinn í kvöld og segir að nú þurfi strákarnir að fara til Tyrklands og sækja þrjú stig.
„Við vorum í erfiðleikum með þriggja manna varnarlínuna og háu bakverðina. Við skorum snemma í síðari hálfleik og jöfnum í 2-2. Við kannski sækjum aðeins of mikið til að skora þriðja markið og þetta er opið hjá okkur. Við urðum að sækja þrjú stig en heilt yfir var þetta slakt,“ sagði Gylfi við Vísi.
„Við áttum 30 mínútur eftir er staðan var 2-2 og við trúðum því að við værum að fara skora þriðja markið en þetta gengur ekki alltaf upp.“
„Við vissum að þetta yrði ekkert auðvelt. Þetta verður erfiðara núna en við höfum áður farið til Tyrklands og sótt þrjú stig og viljum gera það aftur núna.“
„Það eru fjórir leikir eftir og tólf stig. Það er nóg eftir. Við getum misstigið okkur eins og öll hin liðin. Þetta er ekki búið fyrr en í nóvember svo ef við förum til Tyrklands og náum í þrjú stig er allt opið.“