Út er komið nýtt stuðningsmannalið kvennaliðs KR sem samið var fyrir bikarúrslitaleik liðsins gegn Selfossi sem fram fer á Laugardalsvelli á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu en þar er bent á að vel þekkt sé að lið sem eru á leið á stórmót eða úrslitaleiki búi til stemningslag með þekktum flytjendum.
„Ensku landsliðin í den gerðu þetta reglulega og unnu með hljómsveitum eins og New Order, The Farm og hver getur gleymt laginu Vindaloo með Fat Les. En það er nokkuð langt síðan þetta var gert síðast og þessi flotta hefð virðist vera að leggjast af.
En núna hefur kvennalið KR, sem spilar úrslitaleik í Mjólkurbikarnum á laugardaginn, endurvakið þessa stórskemmtilegu hugmynd. Frá því að íslenska landsliðið í handbolta söng Við gerum okkar besta þá hefur ekkert íslenskt félagslið stigið jafn afgerandi inn í upptökustudíó og núna. Lagið, sem heitir Meistaravellir, var unnið í miklu samstarfi við Steinunni Jónsdóttir sem þekkt er úr Amabadama og Reykjavíkurdætrum. Steinunn, sem skrifaði texta lagsins, dreif einnig Röggu Holm, sem samdi og flutti rapp kaflann í laginu, og söngkonuna Matthildi með sér í studíóið. Úlfur Eldjárn sá um tónlistarhliðina að mestu.
Lagið er baráttulag og þótt það fjalli um KR þá er einnig hægt að sjá víðari merkingu í því fyrir kvennaboltann almennt hér á landi. Þetta er því liður að auka þá athygli sem íslenski kvennaboltinn er að fá á Íslandi og beina kastljósinu að þeim miklu gæðum sem eru þar til staðar,“ segir í tilkynningunni.
Sjá má lagið og myndbandið hér að neðan.