Start mun spila í efstu deild Noregs á næsta tímabili eftir svakalegan leik við Lillestrom í kvöld.
Um var að ræða seinn leik liðanna sem fór fram á heimavelli Lillestrom. Start vann fyrri leikinn 2-1 heima.
Það leit allt út fyrir að Lillestrom myndi halda sæti sínu í efstu deild og að Start yrði áfram í B-deildinni.
Staðan var 4-0 fyrir Lillestrom þegar 60 mínútur voru komnar á klukkuna en þá datt Martin Ramsland í gírinn.
Ramsland skjoraði þrennu á aðeins sex mínútum og tryggði þar með Start sæti í efstu deild á mörkum skoruðum á útivelli.
Aron Sigurðarson spilaði allan leikinn fyrir Start en liðið er þjálfdað af Jóhannesi Harðarsyni.
Arnór Smárason lék lokamínúturnar fyrir Lillestrom sem er fallið.