María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarkona Þorgerðar Katrínar hjá Viðreisn, veltir áhugaverðum steini á samfélagsmiðlinum Twitter.
Þar segir María frá því að varaþingmaður, Þorgerðar hafni því alfarið að hafa allt skrautið sem hún geymir á skrifstofu sinni.
Varaþingmaðurinn er, Ómar Ásbjörn Óskarsson. ,,Varaþingmaður Þorgerðar neitar að hafa þetta inn á skrifstofunni á meðan hann leysir hana af. Segist vera United maður. Greyið. Ég lofa að passa vel uppá þessa gersemi,“ skrifar María Rut á Twitter.
Liverpool er besta lið ensku úrvalsdeildarinnar, Þorgerður er hörð stuðningskona Liverpool og geymir merki félagsins á skrifstofu sinni.
Ómar hefur sparkað þessu merki út af skrifstofunni, hann er harður stuðningsmaður Manchester United en það félag er í krísu. Viðreisn er í stjórnarandstöðu en Þorgerður var áður í Sjálfstæðisflokknum.
Varaþingmaður @thorgkatrin neitar að hafa þetta inn á skrifstofunni á meðan hann leysir hana af. Segist vera United maður. Greyið. Ég lofa að passa vel uppá þessa gersemi 😬🙌🏼 pic.twitter.com/w5hn4aSahg
— María Rut (@mariarutkr) November 18, 2019