Ruud van Nistelrooy fyrrum framherji Manchester United var það orðljótur við Cristiano Ronaldo á æfingu, að Ronaldo fór að gráta.
Louis Saha greinir frá þessu en hann var samherji þeirra hjá United. Nistelrooy fór frá Manchester United árið 2006, Saha, Ronaldo og Wayne Rooney fylltu hans skarð.
,,Ruud sagði hluti við Ronaldo sem urðu til þess að hann fór að gráta,“ sagði Saha um málið.
,,Faðir Ronaldo hafði fallið frá, skömmu áður. Þetta var ekki rétta augnablikið hjá Rudd að hjóla svona í hann.“
,,Svona hlutir gerast stundum þegar tveir menn með mikið skap eigast við, ég er hins vegar viss um að Ruud sér eftir því sem hann sagði þarna,“ sagði Saha en vildi ekki greina frá því hvað Nistelrooy hafi sagt.