Leiknir Fáskrúðsfirði er búið að tryggja sér sæti í Inkasso-deild karla fyrir næsta tímabil.
Margir spáðu því að Leiknismenn yrðu í vandræðum í sumar og sumir spáðu því að liðið myndi falla.
Eftir sigur í síðustu umferð deildarinnar um helgina varð ljóst að liðið vann 2.deildina á magnaðan hátt.
Það var fagnað verulega fyrir austan eftir sigurinn og fóru flugeldar til að mynda á loft.
Ungur strákur í stúkunni vakti á sama tíma mikla athygli er hann sá sína menn tryggja sæti sitt í Inkasso-deildinni.
Strákurinn heitir Axel Valsson en Leiknir birti frábært myndband á Twitter-síðu sinni af honum fagna titlinum.
Sjón er sögu ríkari.
Leikmennirnir stóðu sig eins og hetjur en það gerði Axel Valsson líka sem lýsti leiknum! SJÓN ER SÖGU RÍKARI❤️? #inkasso2020 pic.twitter.com/ZYmKKz8xAN
— Leiknir F. (@Leiknirfask) 23 September 2019