Aron Einar Gunnarsson er byrjaður að skora mörk fyrir lið Al-Arabi sem er í Katar.
Aron gerði sitt fyrsta mark fyrir Al-Arabi nýlega og komst svo aftur á blað gegn Umm-Salal í dag.
Aron gerði annað mark liðsins í öruggum 5-1 sigri en Al-Arabi hafði lent undir snemma leiks.
Al-Arabi byrjar tímabilið af miklum krafti og er í efsta sæti deildarinnar með sjö stig úr þremur leikjum.
Hér má sjá markið í dag.
Aron Einar kemur Al-Arabi í 2-1. pic.twitter.com/BR8vaIKnLH
— Íslendingavaktin (@Islendingavakt) 13 September 2019