Kristján Flóki Finnbogason hefur gert samning við KR í Pepsi Max-deild karla en er þó ekki genginn í raðir félagsins.
Kristján er enn að leika með Start í Noregi og kom við sögu í 4-1 sigri á Ham-Kam í næst efstu deild.
Kristján skoraði fjórða mark Start í sigrinum í dag en stoðsendingin var frá Aroni Sigurðssyni.
Annað íslenskt mark kom í sigri Aalesund á KFUM Oslo en þar leika nokkrir Íslendingar.
Davíð Kristján Ólafsson skoraði fyrsta mark Aalesund í 4-2 sigri og lagði þá upp þriðja mark liðsins.
Daníel Leó Grétarsson, Aron Elís Þrándarson og Hólmbert Aron Friðjónsson spiluðu einnig í sigrinum.