Það styttist í hörkuleik í ensku úrvalsdeildinni er lið Newcastle og Southampton eigast við.
Southampton á enn í hættu á að falla niður um deild en liðið er fimm stigum frá fallsæti.
Newcastle hefur einni verið við botninn á leiktíðinni en er sjö stigum frá 18. sætinu fyrir viðureign dagsins.
Hér má sjá byrjunarliðin á St. James’ Park.
Newcastle: Dubravka; Manquillo, Schär, Lascelles, Dummett, Ritchie; Ayoze Pérez, Ki, Hayden, Almirón; Rondón.
Southampton: Gunn; Bednarek, Yoshida, Stephens; Ward-Prowse, Oriol Romeu, Højbjerg, Bertrand; Sims, Redmond; Ings.