fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Gat ekki sætt sig við niðurstöðuna – Ein setning sem segir allt sem segja þarf

433
Fimmtudaginn 18. apríl 2019 08:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fernandinho, leikmaður Manchester City, var alls ekki sáttur í gær eftir leik liðsins við Tottenham.

Um var að ræða leik í Meistaradeild Evrópu en City vann viðureign gærdagsins 4-3 á heimavelli.

Það reyndist hins vegar ekki nóg því Tottenham vann fyrri leikinn 1-0 í London og fer áfram á mörkum skoruðum á útivelli.

Á 93. mínútu í leik gærdagsins þá skoraði Raheem Sterling fimmta mark City og brutust út mikil fagnaðarlæti.

Stuttu seinna var markið hins vegar dæmt af vegna rangstöðu og ljóst að City var úr leik í keppninni.

Það var myndbandstækninni VAR að þakka að markið var dæmt af en aðstoðardómarinn flaggaði ekki til að byrja með.

Fernandinho var spurður út í eigin líðan eftir leikinn og hafði ekki mikið að segja við blaðamenn.

,,Til fjandans með VAR,“ sagði Fernandinho og gekk í burtu þrátt fyrir að dómurinn hafi augljóslega verið réttur.

Tottenham fer áfram í undanúrslit keppninnar og spilar þar við Ajax í næstu umferð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“
433Sport
Í gær

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“
433Sport
Í gær

Klásúla í samningi Bruno í sumar – Getur farið ódýrt frá United

Klásúla í samningi Bruno í sumar – Getur farið ódýrt frá United
433Sport
Í gær

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ronaldo sendi væna sneið á meðan hann var í miðju viðtali

Ronaldo sendi væna sneið á meðan hann var í miðju viðtali
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“