Mikil umræða hefur átt sér stað vegna máls sem kom upp í leik Leiknis Reykjavík og Stjörnunnar á dögunum.
Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður Stjörnunnar, lét þá ljót ummæli falla í garð Ingólfs Sigurðssonar, leikmanns Leiknis. Þórarinn hefur beðist afsökunar á þessum ummælum og hefur aganefnd KSÍ einnig farið yfir málið.
Ákveðið var að Þórarinn myndi aðeins taka út eins leiks bann og verður ekki refsað frekar fyrir ummælin. Það hefur vakið hörð viðbrögð.
Geðhjálp, Leiknir, og ýmsir aðrir hafa gagnrýnt störf aganefndar KSÍ, fyrir að refsa leikmanni Stjörnunnar ekki meira, en raun ber vitni.
Herði Magnússyni, íþróttafréttamanni finnst umræðan komin of langt. Þórarinn hafi sýnt iðrun. ,,Þórarinn Ingi missti stjórn á sér og lét ómerkileg orð falla. Hann hefur beðist einlæglega afsökunar og iðrast,“ skrifar Hörður á Twitter.
Hörður segir að ýmislegt geti gerst í hita leiksins.
,,Keppnisskap getur svo sannarlega leikið menn grátt. Það brjótast út margvíslegar tilfinningar í 90 mín knattspyrnuleik. Það þekkja þeir sem spilað hafa leikinn.“
Þórarinn Ingi missti stjórn á sér og lét ómerkileg orð falla. Hann hefur beðist einlæglega afsökunar og iðrast. Keppnisskap getur svo sannarlega leikið menn grátt. Það brjótast út margvíslegar tilfinningar í 90 mín knattspyrnuleik. Það þekkja þeir sem spilað hafa leikinn.
— Höddi Magg (@HoddiMagnusson) March 21, 2019