Það er allt undir á Emirates í kvöld er lið Arsenal fær franska liðið Rennes í heimsókn.
Um er að ræða leik í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en seinni leikurinn fer fram í London.
Rennes vann fyrri leikinn á heimavelli 3-1 og er því í ansi góðri stöðu fyrir leik kvöldsins á Emirates.
Stuðningsmenn liðsins eru svo sannarlega spenntir og hafa bullandi trú á að sínir menn komist áfram.
Það er óhætt að segja að þeir frönsku hafi tekið yfir London í dag er þeir gerðu sér leið á völlinn.
Myndband af þeim ganga þangað má sjá hér fyrir neðan.
Rennes fans march towards the Emirates ?#ARSSRFC #Arsenal #Rennes #EuropaLeague pic.twitter.com/FBRLyG1w6F
— FootballAbyss (@AbyssFootball) 14 March 2019