fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Fréttir

Starfsmaður Morgunblaðsins grunaður um að pissa ítrekað í ruslafötur

Hjálmar Friðriksson
Miðvikudaginn 14. júní 2017 13:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mannauðstjóri Árvakurs, Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir, sá sig tilneydda til að senda tölvupóst á alla starfsmenn fyrirtækisins, sem gefur út Morgunblaðið og mbl.is, til að hvetja starfsmenn til að kasta af sér á klósettum en ekki í ruslafötur.

Vísir greinir frá og vitnar í tölvupóst Svanhvítar: „Sæl. Eins og heiti tölvupóstsins gefur til kynna hefur einhver ítrekað pissað í ruslafötu á 1. hæðinni. Það eru ótal klósett í húsinu, vinsamlegast notið þau.“

Ekki kemur fram í frétt Vísis hvenær tölvupósturinn var sendur á starfsmenn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt