Björn Daníel Sigurðsson hefur verið handtekinn. Lögreglan greinir frá þessu í fréttatilkynningu. Hann skilaði sér ekki í afplánun á Vernd á tilsettum tíma um síðustu helgi.
Björn Daníel hlaut í febrúar í fyrra fjögurra ára fangelsi fyrir brot sín en er nú, einungis einu og hálfu ári síðar, kominn í opið úrræði.
Hann var dæmdur fyrir frelsissviptingu, líkamsárás, hótanir, kynferðisbrot og stórfelldar ærumeiðingar gegn Diljá Töru Helgadóttur, fyrrverandi sambýliskonu sinni.