fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Guðrún hótaði Vigfúsi lífláti: Óttaðist um dóttur sína – „Ég skal drepa þig helvítið þitt“

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 23. mars 2018 10:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún Karítas Garðarsdóttir hefur verið kærð fyrir að hóta að drepa bocciaþjálfarann Vigfús Jóhannesson. Fréttablaðið greinir frá ákærunni og tekur fram að Vigfús sé grunaður um kynferðisbrot gegn þroskaskertum konum. DV greindi frá því þann 10. maí 2017 að Boccia-heimurinn á Akureyri væri klofinn vegna átaka tveggja boccia klúbba í bænum. Í frétt DV sagði að 16 fyrrverandi liðsmenn Akurs, sem glíma við þroskaskerðingu af einhverju tagi hefðu gengið úr félaginu yfir í nýtt ósamþykkt félag sem heitir BFA sem stendur fyrir Bocciafélag Akureyrar. Í frétt DV sagði ennfremur að málið væri sérstakt og mætti rekja til þess að Vigfús Jóhannesson fyrrverandi formaður Akurs hefði ákveðið að stíga til hliðar eftir að skjólstæðingur hans kærði hann fyrir alvarlegt kynferðisbrot. Ekki hefur verið dæmt í því máli og Vigfús alltaf þvertekið fyrir að hafa beitt konuna ofbeldi.

Í sömu frétt greindi DV frá því að áður hafði Vigfús verið ávíttur af réttargæslumanni fatlaðra á Akureyri þar sem hann þótti sýna af sér ósæmilega hegðun sem þjálfari í garð stúlkunnar haustið 2014, en samkvæmt heimildum DV kvörtuðu milli fimm og sjö manns, sem urðu vitni að hegðun Vigfúsar á móti á Seyðisfirði. Vigfús segir í samtali við DV að hann hafi ekki gert neitt rangt. Réttargæslumaður fatlaðra hefur einnig dregist inn í deilurnar og var kvartað undan honum til velferðarráðuneytisins eftir að hann samþykkti að Vigfús yrði talsmaður stúlkunnar.

Vigfús hélt áfram þjálfun eftir að hafa verið kærður en þegar lögregla fór að rannsaka málið af fullum þunga í byrjun árs 2016 og birti Vigfúsi kæru steig hann til hliðar sem formaður og varaformaður tók tímabundið við stjórnartaumum. Þá hætti Vigfús einnig þjálfun. Í maí það sama ár var kosin ný stjórn. Var megn óánægja á fundinum. Vigfús hafði áður verið formaður, eiginkona hans gjaldkeri og aðrir stjórnarmenn voru þroskaskertir iðkendur í íþróttafélaginu. Í nýrri stjórn var ein kona sem hafði kvartað undan Vigfúsi vegna dóttur sinnar þegar hann fór með henni einni í sund og svo móðir stúlkunnar sem hafði kært Vigfús fyrir kynferðisbrot.

Forsaga

Vigfús Jóhannesson er vinsæll kennari í boccia. Þá naut hann mikilla vinsælda hjá skjólstæðingum sínum bæði í Akri og hinu nýja félagi BFA en þangað virðist fjöldi iðkenda hafa fylgt honum, en tekið skal fram að hann segir sjálfur að iðkendur hafi átt frumkvæði að því að stofna nýtt félag. Vigfús hefur verið sakaður um að vera í óeðlilega miklum samskiptum við skjólstæðinga sína þegar hann stýrði Akri, fara með þeim í sund og halda samkvæmi en hann gerir lítið úr slíku tali. Þá hefur hann verið sakaður um að rúnta um með iðkendur sína á Lödusportbifreið á eftir iðkendum sem enn æfa með Akri og sýnt þannig af sér ógnandi tilburði. Vigfús hlær að þessum ásökunum:

„Ég á gamla Lödu Sport sem ég gerði upp og er fornbíll. Það er nú ekki rétt að ég sé rúntandi um og flautandi á fólk því að flautan er biluð á honum. Ég viðurkenni að ég hef farið rúnt stundum með tvo til þrjá úr félaginu. Þá erum við að leita að pókemon.“

Umdeilt mót á Seyðisfirði

Haustið 2014 fór fram á Seyðisfirði Íslandsmót í boccia. Þar þótti Vigfús sýna af sér óeðlilega framkomu gagnvart skjólstæðingi sínum. Konan, sem var þá 23 ára, hafði tapað leik og tók það nærri sér. Segja sjónarvottar að Vigfús hafi tekið lengi innilega utan um hana og síðan leitt hana inn í herbergi. Þá hafi hún verið með honum öllum stundum á umræddu móti. Minnst sjö aðilar hjá mismunandi íþróttafélögum höfðu þá samband við réttargæslumann fatlaðra á Akureyri. Í kjölfarið var Vigfús áminntur af réttargæslumanninum.

„Stelpan var að spila leik í úrslitum og tapaði mjög stórt og hún er ofboðslega tapsár,“ sagði Vigfús í samtali við DV. „Hún stóð þarna hágrenjandi og ég tók utan um hana á gólfinu. Það var nú ekkert annað. Ég leiddi hana út úr salnum og að þvottahúsi sem var þarna og þar huggaði ég hana á meðan hún grenjaði. Það voru öll samskiptin.“

Voruð þið í sambandi, þú og þessi stúlka?

„Ég get ekki sagt neitt til um það, fyrirgefðu.“

Vigfús sagði að móður konunnar stæði á bak við kæruna og fyrrverandi skjólstæðingur hans tekið þátt í því þar sem hún hafi verið reið og sár út í hann vegna misskilnings. Vigfús sakaði móðurina um að vera í hefndarhug og að kæran snúist um að hafa af sér peninga. Þá segir hann málið byggt á sandi.

Hvað er verið að kæra þig fyrir?

„Hún er að segja að ég hafi misnotað sig. Þetta er nauðgunarkæra. Það er ekki rétt.“

Hótaði lífláti

Í frétt Fréttablaðsins er Vigfús ekki nafngreindur en segir í frétt blaðsins að hann hafi í krafti yfirburðarstöðu nýtt sér þær kynferðislega og stúlkur rofið öll tengsl við fjölskyldu sína. Ákvörðun um kæru liggur ekki fyrir en búið er að kæra Guðrúnu. Í frétt Fréttablaðsins kemur einnig fram að þegar Guðrún áttaði sig á að Vigfús hafði sett sig í samband við dóttur hennar hafi hún reiðst. Dóttir hennar er þroskaskert og æfði um tíma hjá Vigfúsi. Konan fór og hitti Vigfús og sagði samkvæmt kæru:

„Ég skal drepa þig helvítið þitt,“ og „jú víst, ég get látið drepa þig“.

Konan sem kvaðst hafa óttast um dóttur sína og er slegin vegna málsins.

„Þetta eru veruleg vonbrigði,“ segir Guðrún.

Nánar má lesa um málið í Fréttablaðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“