Ný ríkisstjórn á teikniborðinu
Sjálfstæðisflokkurinn fær fimm ráðherra í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar, auk þess að fá embætti forseta þingsins. Ríkisstjórnin er á teikniborðinu. Viðreisn fær þrjá ráðherra og Björt framtíð tvo. Vísir greinir frá þessu.
Sjálfstæðisflokkurinn er langstærsti þingflokkurinn, með 21 þingmann en Benedikt Jóhannesson hefur sagt að skiptingin verði að líkindum í hlutfalli við þingstyrk flokkanna.
Vísir gerir ráð fyrir því að þingflokksformennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson, Björt Ólafsdóttir og Hanna Katrín Friðriksson fái sæti í ríkisstjórn.