fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Tveggja milljóna króna borgarstjóri

Rúmlega hálf milljón aukalega fyrir stjórnarsetu – Afþakkaði launahækkun en er samt á pari við forsætisráðherra eftir ákvörðun kjararáðs

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 22. nóvember 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, er með rúmlega tvær milljónir króna í heildarlaun vegna starfa sinna og setu í stjórnum á vegum borgarinnar. Þegar allt er talið til er hann, þrátt fyrir að hafa afþakkað launahækkun á dögunum, með nánast sömu laun og kjararáð ákvarðaði forsætisráðherra nýverið. Borgarstjóri getur fengið rúma hálfa milljón aukalega fyrir setu í stjórnum. Þá hefur hann afnot af borgarstjórabifreið og aðgang að bílstjóra sem er á fullum launum hjá Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn DV um starfskjör borgarstjóra.

Afþakkaði umdeilda launahækkun

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks og flugvallarvina, lagði í síðustu viku fram ítarlega fyrirspurn í borgarráði um heildarlaunagreiðslur til borgarstjóra. Vildi hún fá upp á borðið hvaða greiðslur hann væri að þiggja bæði fyrir störf sín og setu í stjórnum hinna ýmsu fyrirtækja eða félaga tengdum borginni. DV beindi efnislega sambærilegri fyrirspurn til borgarinnar og svörin liggja fyrir.

Eftir að kjararáð birti umdeilda ákvörðun sína um hækkun launa þjóðkjörinna fulltrúa, þar sem laun forsætisráðherra hækkuðu úr 1.490.813 krónur í 2.021.825 krónur, varð ljóst að áhrifa ákvörðunarinnar myndi líka gæta á sveitarstjórnarstigi. Laun borgarstjóra fylgja nefnilega launum forsætisráðherra og hafa lengi gert. Dagur steig hins vegar strax fram og lýsti því yfir að hann myndi afþakka hækkunina og þann 15. nóvember var samþykkt tillaga borgarstjórnar um óbreytt laun kjörinna fulltrúa. Ekki munu þó allir borgarfulltrúar hafa verið sáttir við þá ákvörðun enda hefðu þeir notið góðs af ákvörðun kjararáðs því laun þeirra nema ákveðnu hlutfalli af þingfararkaupi.

Þetta fær borgarstjóri í laun

Hundruð þúsunda í sporslur vegna stjórnarsetu

Laun sem borgarstjóri: 1.490.457 kr.

Starfskostnaður: 90.636 kr.

Stjórnarmaður Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins: 170.888 kr.

Stjórnarformaður Faxaflóahafna: 305.176 kr.
(Tímabundið. Leysir af stjórnarformann í fæðingarorlofi)

Seta í Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins: 31.375 kr. á fund.
(Fundað 2-4 sinnum á ári)

Alls: 2.088.532 kr.

Laun forsætisráðherra eftir nýjustu ákvörðun kjararáðs: 2.021.825 kr.

Hálf milljón fyrir stjórnarsetu

Í svari við fyrirspurn DV kemur fram að laun borgarstjóra séu í dag 1.490.457 krónur. Ofan á það leggst síðan starfskostnaður sem nemur rúmum 90 þúsund krónum.

Borgarstjóri fær einnig laun fyrir setu í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, rúmar 170 þúsund krónur á mánuði. Þá, líkt og fram hefur komið, fær hann laun sem stjórnarformaður Faxaflóahafna þar sem hann er að leysa af formanninn, Kristínu Soffíu Jónsdóttur í fæðingarorlofi hennar. Fær borgarstjóri 305.176 krónur á mánuði fyrir að veita stjórn Faxaflóahafna formennsku tímabundið.

Loks fær Dagur frekari sporslur fyrir setu í Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins. Sú nefnd sker sig úr að því leytinu til að þar er ekki um fastar greiðslur að ræða, heldur fyrir hvern fund. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg fundar nefndin að jafnaði um tvisvar til fjórum sinnum á ári, og fær borgarstjóri 31.375 krónur fyrir hvern fund. Þegar þannig hittir á geta heildargreiðslur til borgarstjóra vegna stjórnarsetu numið rúmlega hálfri milljón.

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks og flugvallarvina, spurði út í heildarlaun borgarstjóra á síðasta borgarráðsfundi.
Spurði um launin Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks og flugvallarvina, spurði út í heildarlaun borgarstjóra á síðasta borgarráðsfundi.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Rúmar tvær milljónir

Ef greiðslur fyrir Almannavarnanefndina eru undanskildar nema heildarlaunagreiðslur borgarstjóra 2.057.157 krónum í dag. Þegar svo hittir á að fundað sé í Almannavarnanefnd, eru launin augljóslega hærri.

Sveinbjörg Birna spurðist einnig fyrir um borgarstjórabifreiðina og hvort henni fylgdi bílstjóri og hver kjör hans væru.
Í svari við fyrirspurn DV kemur fram að borgarstjóri hafi afnot af bifreið af gerðinni Volkswagen Passat, sem keypt var í janúar 2013 á 5.221.194 krónur.

Bifreiðinni fylgir bílstjóri sem er í vinnu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hann er þó ekki einkabílstjóri borgarstjóra því fram kemur að hann sinni öðrum akstursverkefnum fyrir ráðhúsið líka. Laun og launatengd gjöld bílstjóra ráðhússins eru áætluð 8,8 milljónir króa árið 2016, eða sem nemur ríflega 730 þúsund krónum á mánuði.

Hefði slagað í forsetalaun

Heildarlaun borgarstjóra að meðtöldum aukagreiðslum vegna stjórnarsetu, eru því nánast upp á krónu þau sömu og kjararáð ákvarðaði forsætisráðherra í hinum umdeilda úrskurði; rétt rúmlega tvær milljónir króna.

Hefði Dagur B. Eggertsson hins vegar þegið þá launahækkun hefðu heildarlaun hans numið alls 2.588.525 krónum, og verið umtalsvert hærri en laun forsætisráðherra og raunar farið að slaga upp í laun forseta Íslands sem fær 2.985.000 krónur eftir ákvörðun kjararáðs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“
Fréttir
Í gær

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
Fréttir
Í gær

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi
Fréttir
Í gær

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni
Fréttir
Í gær

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“