fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
Fókus

Kristín kýs að sjá spauglegu hliðarnar á ADHD: „Get sýnt áhuga en planað kvöldmatinn á sama tíma“

Nefnir fjölmörg spaugleg atvik tengd því að vera greind með ofvirkni og athyglisbrest – „Get átt í tveggja klukkustunda samræðum um kertavax“

Auður Ösp
Miðvikudaginn 7. desember 2016 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er rosalega þakklát fyrir ofvirknina þótt ég hati hana stundum en ég er oft búin að þrífa íbúðina, þvo þvottinn, fara í ræktina og týna símanum mínum fimm sinnum fyrir hádegi,“ segir Kristín Hólm Geirsdóttir háskólanemi, og ein af þeim fjölmörgu Íslendingum sem greindir eru með ADHD, eða athyglisbrest með ofvirkni (AMO.) Hún líkir röskuninni við það að vera inni í herbergi með tuttugu sjónvörpum sem öll eru stillt á mismunandi stöð, en hún kýs jafnframt að sjá spauglegu hliðarnar á ADHD, og hvetur aðra til þess sama.

Kristín er 24 ára Akureyringur sem stundar nú nám í þjálfara og íþróttavísindum á Írlandi en hún ritaði bráðskemmtilegan pistil nú á dögunum þar sem hún nefnir meðal annars nokkur dæmi um skondnar aðstæður sem hún leiðst út í, en líklega má kenna ADHD þar um.

„Ég ákvað að skrifa þennan pistil einfaldlega afþvi að mer finnst margir sem eru með ADHD kvarta yfir því. Sjá ekki það góða við það. Þótt þessi pistill er rosalega kaldhæðinn á margan hátt,“ segir Kristín í samtali við DV og tekur undir að það sé blátt áfram nauðsynlegt að geta hlegið að sjálfum sér við og við. „Ég ákvað bara að gera grín af því sem flestir kvarta yfir, og jú ég líka, en maður verður bara að hlægja að öllu því asnalega sem maður segir og gerir!,“ segir Kristín jafnframt en víst er að einhverjir ættu að geta sett sig í hennar spor.

„Ég fer svo hratt yfir daginn. Ég man aldrei hvert ég set hlutina. Einu sinni leitaði ég að símanum mínum í góða klst og pabbi fann hann í hettunni á úlpunni sinni. Þá æði ég bara inn og hendi honum eitthvert, ef það er hetta þá er það hetta,“ segir hún hlæjandi.

Getur átt tveggja klukkustunda samræður um kertavax

Kristín fékk greiningu síðasta sumar og byrjaði í kjölfarið að taka lyf, en hún hafði mánuðina áður stundað starfsnám í Svíþjóð. Í pistli sínum kveðst hún þó aldrei hafa ætlað að fá greiningu, og hvað þá að byrja á lyfjum. Eftir ár í Svíþjóð hafi hún þó virkilega farið að hugleiða lyfjagjöf.

„Eftir að hafa týnt húslyklunum yfir þrisvar sinnum og í eitt skiptið endað á sófanum hjá vinkonu minni einfaldlega af því að ég komst ekki inn í mína eigin íbúð. Eftir að hafa fengið skammir frá konunni sem vinnur í bankanum þegar ég labbaði inn biðjandi um nýtt debit kort í fimmta skipti og týnt símanum mínum yfir 20 sinnum.

Svo má ekki gleyma því skipti sem ég gleymdi að loka frystinum og kom heim að poll stærri en Atlantshafið og allur matur orðinn að sulli. Ofvirknin virkar öðruvísi á mig en ég get átt í tveggja klukkustunda samræðum um kertavax, „if I feel like it“ og oft þegar ég kem heim er ég svo uppfull af sögum að ég stend í miðri stofunni með uppistand. Ég hef líka oft farið í 3+ göngutúra yfir daginn og daglega tala ég upphátt við sjálfa mig og skemmti mér konunglega,“

ritar Kristín sem oft hefur fengið að heyra að hún sé athyglisjúk, frek, hávær og pirrandi.

„Og af því að ég sé ekki þessa svokölluðu „línu“ sem má ekki fyrir yfir þá er ég oft leiðinlega hreinskilin eða gróf í talsmáta . Ég deili of miklu – þetta segir þú ekki upphátt.“

Hefur masterað þá list að gera tvo hluti í einu

Kristín kveðst jafnframt hafa „gúglað“ AMO og niðurstöðurnar hafi flestar verið í neikvæðum tón og einblínt eingöngu á neikvæðu hliðar röskunarinnar, og hversu erfitt það sé að vera greindur með hana.

„Ég er rosalega þakklát fyrir ofvirknina þótt ég hati hana stundum en ég er oft búin að þrífa íbúðina, þvo þvottinn, fara í ræktina og týna símanum mínum fimm sinnum FYRIR hádegi. Svo get ég líka talað rosalega hratt þannig að leiðinlegar samræður við leiðinlegt fólk verða rosalega stuttar þar sem ég sulla öllum mínum upplýsingum út á núll einni, nú eða ég geri manneskjunni ljóst um að mér finnist hún leiðinleg þar sem ég sé víst ekki þessa blessuðu línu sem má ekki fyrir yfir. Hvort sem það er, þá er þetta win win situation.

Þar sem ég vil oft þjóta hratt yfir daginn þá get ég ekki sagt að ég sé smámunarsöm, þvílíkur léttir er það að geta skellt sér í krumpaða skyrtu eða í sokka með gat á tánum og vera alveg sama, þetta sparar tíma og þar að leiðandi mætti segja að ég sé strax einu skrefi á undan. Þar sem ég ulla óþarfa upplýsingum um sjálfa mig á fyrstu mínútunni sem ég hitti einhvern nýjan eins og til dæmis þeirri staðreynd að ég er með inngrónar táneglur,þá fæli ég strax fólk í burtu sem höndlar ekki mikilvæg málefni á borð við inngrónar neglur, en það er leiðinlegt vesen að díla við þær. Það aftur á móti sparar tíma og óþarfa vesen, þar með má segja að ég græði helling af mínútum á hverjum degi með því að vera hin ofvirka ég. Sumir kvarta yfir því að þurfa fleiri klukkustundir í sólahringinn, klukkustundinar koma af náttúrunar hendi til mín, ég kvarta ekki yfir þessu.“

Þá nefnir Kristín fleiri af jákvæðum hliðum þess að vera með athyglisbrest og ofvirkni:

„Ég er til dæmis rosalega góð í því að líta út fyrir að vera að hlusta þegar ég er í raun að pæla í því hvar í andskotanum ég lagði bílnum, ég er orðin svo góð í þessu að ég er með settan spurningalista sem hentar við öll tilefni til þess að virðast vera mjög áhugasöm. Þetta er mjög hentugt þegar ég er föst í samræðum sem mér leiðast, ég get sýnt áhuga en planað kvöldmatinn á sama tíma, það má segja að ég sé búin að mastera þann eiginleika að geta gert tvo hluti í einu. Talandi um hvar ég lagði bílnum, þá labba ég óþarflega mikið í leit af bílnum, stundum kemst ég að þeirri niðurstöðu að ég kom ekki á bíl, allavegana, þá er auka hreyfing ekkert nema holl, ég tek þessu fagnandi.

Ég er líka uppfull af hugmyndum, sögum og allskonar uppgötvunum þar sem hausinn á mér stoppar aldrei og mig hlakkar rosalega til þess að sjá hvað ég get gert við þennan haus minn. Athylgisbresturinn hjálpar mér líka mikið þegar ég til dæmis sit á biðstofum en ég get horft á kuskið á gólfinu endalaust lengi og skemmt mér konunglega og þar að leiðandi verður biðin styttri og skemmtilegri ef maður hunsar þá staðreynd að nafnið þitt hefur verið kallað upp yfir fimm sinnum þegar þú loksins missir áhuga á kuskinu.“

Kristín kveðst jafnframt vera þakklát lyfjunum, sem hjálpi henni að lifa með athyglisbrestinum og öllu sem honum fylgir.

„Ég er loksins farin að geta skrifað, ég skrifa og ég skrifa. Hugmyndinar eru farnar að taka á sig mynd í stað þess að vera eins og flækt garn í hausnum á mér. Þetta er líka oft erfitt og pirrandi en þú verður bara að hafa húmor fyrir sjálfum þér og þeim asnalegu hlutum sem þú framkvæmir eða lætur út úr þér en mikilvægast er að notfæra þér það hugmyndaflug sem þú hefur í eitthvað gáfulegt,“ ritar Kristín að lokum og endar á þessum fleygu orðum:

„Takk AMO“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Best klæddu stjörnurnar á Met Gala 2024

Best klæddu stjörnurnar á Met Gala 2024
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur segir þetta vera stórkostlega ofmetið fyrir fitutap – Gerðu þetta í staðinn

Ragnhildur segir þetta vera stórkostlega ofmetið fyrir fitutap – Gerðu þetta í staðinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Alexandra Helga og Gylfi eiga von á öðru barni

Alexandra Helga og Gylfi eiga von á öðru barni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“