fbpx
Föstudagur 03.maí 2024

Þýskaland

Frakkar og Þjóðverjar vilja refsa Rússum fyrir morðtilræðið við Navalny

Frakkar og Þjóðverjar vilja refsa Rússum fyrir morðtilræðið við Navalny

Pressan
09.10.2020

Frönsk og þýsk stjórnvöld munu leggja til að refsiaðgerðum verði beitt gegn þeim aðilum sem talið er að hafi staðið á bak við morðtilræðið við rússneska stjórnarandstöðuleiðtogann Alexei Navalny. Eitrað var fyrir honum með taugaeitrinu Novichok. Grunur leikur á að rússnesk stjórnvöld hafi staðið á bak við tilræðið. Frönsk og þýsk stjórnvöld hafa sent öðrum aðildarríkjum ESB Lesa meira

Mesti fjöldi smita í Þýskalandi mánuðum saman

Mesti fjöldi smita í Þýskalandi mánuðum saman

Pressan
09.10.2020

Gærdagurinn var slæmur hvað varðar fjölda nýsmita af völdum kórónuveirunnar, sem veldur COVID-19, í Þýskalandi og var fjöldi nýrra smita sá mesti mánuðum saman. Alls greindust 4.058 smit en voru 2.828 á miðvikudaginn. Ef þessi þróun heldur áfram gæti daglegur fjöldi nýrra smita farið yfir 10.000. BBC segir að aukningin á milli daga sé sú mesta síðan í apríl. Lesa meira

Kórónuveirusmitaður fjölskyldufaðir stóðst ekki mátið og fór á McDonalds með alla fjölskylduna

Kórónuveirusmitaður fjölskyldufaðir stóðst ekki mátið og fór á McDonalds með alla fjölskylduna

Pressan
28.09.2020

Þýskur fjölskyldufaðir sem vissi vel að hann var smitaður af kórónuveirunni, sem veldur COVID-19, réði ekki við sig og fór á McDonalds skyndibitastað með alla fjölskylduna nýlega. Þetta gerði hann þrátt fyrir að yfirvöld í Rendsburg hefðu fyrirskipað honum að vera í sóttkví. En það var greinilega svo aðkallandi að fá sér hamborgara að maðurinn fór á McDonalds með eiginkonu sinni og Lesa meira

Næstum þriðji hver Þjóðverji telur að leynileg öfl stýri heiminum

Næstum þriðji hver Þjóðverji telur að leynileg öfl stýri heiminum

Pressan
25.09.2020

Þjóðverjar hafa verið iðnir við að mótmæla aðgerðum stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar og samsæriskenningar eiga upp á pallborðið hjá mörgum. Niðurstöður nýrrar könnunar sýna að þriðji hver Þjóðverji telur öruggt eða líklegt að heiminum sé stýrt af leynilegum öflum. Það var Konrad Adenauser-Stiftung sem gerði könnunina. Í ljós kom að 11% eru vissir um að „til Lesa meira

Heimsfaraldurinn gerir út af við stærsta vændishús Evrópu

Heimsfaraldurinn gerir út af við stærsta vændishús Evrópu

Pressan
09.09.2020

Frá því að heimsfaraldur kórónuveirunnar braust út hefur vændi verið ólöglegt í Þýskalandi. Það hefur nú leitt til þess að stærsta vændishús landsins og um leið Evrópu hefur lagt upp laupana. Vændishúsið heitir Pascha og er í Köln. Armin Lobscheid, forstjóri þessa tíu hæða vændishúss, segir að það sé komið að endalokum starfsemi þess. 120 vændiskonur hafa starfað í húsinu Lesa meira

11 ára sendi besta vini sínum skilaboð – „Öll systkin mín eru dáin“

11 ára sendi besta vini sínum skilaboð – „Öll systkin mín eru dáin“

Pressan
07.09.2020

Á föstudaginn fundust lík fimm systkina á heimili þeirra í Sollingen í Þýskalandi. Móðir þeirra er grunuð um að hafa myrt þau. Hún reyndi síðan að taka eigið líf en það mistókst. 11 ára barn lifði harmleikinn af. Samkvæmt fréttum þýskra fjölmiðla er það drengur og er hann sagður hafa sent besta vini sínum skilaboð Lesa meira

Þrengt að mótmælendum í Berlín – Nú verður að nota andlitsgrímur í mótmælum

Þrengt að mótmælendum í Berlín – Nú verður að nota andlitsgrímur í mótmælum

Pressan
03.09.2020

Á laugardaginn leysti lögreglan í Berlín upp mótmæli þar sem reglum yfirvalda, sem eiga að halda aftur af útbreiðslu kórónuveirunnar, var ekki fylgt. Mótmælin beindust einmitt gegn þessum reglum. En nú hafa reglurnar verið hertar enn frekar. Borgarstjórnin í Berlín ákvað á þriðjudaginn að nú verði skylt að nota andlitsgrímu í mótmælum ef fleiri en 100 taka þátt. Fram Lesa meira

Þjóðverjar munu hugsanlega hefja bólusetningar gegn kórónuveirunni í janúar 2021

Þjóðverjar munu hugsanlega hefja bólusetningar gegn kórónuveirunni í janúar 2021

Pressan
20.08.2020

Klaus Cichutek, yfirmaður þýska lyfjaeftirlitsins, segir að hugsanlega verði byrjað að bólusetja ákveðna þjóðfélagshópa í byrjun næsta ár. Nokkrir lyfjaframleiðendur eru nú að gera prófanir á fólki með hugsanlega bóluefni gegn kórónuveirunni og taka tugir þúsunda manna þátt í þessum tilraunum. Margir sérfræðingar telja að einhver bóluefni verði tilbúin til notkunar í árslok. Cichutek sagði að gögn Lesa meira

Auður ríkustu fjölskyldu Þýskalands hefur minnkað gríðarlega

Auður ríkustu fjölskyldu Þýskalands hefur minnkað gríðarlega

Pressan
13.08.2020

Schaeffler-fjölskyldan hefur tapað gríðarlegum fjárhæðum í heimsfaraldri kórónuveirunnar. Fjölskyldan sem varð sú ríkasta í Þýskalandi 2018 heldur þeim titli varla lengur miðað við hversu mikið auður hennar hefur minnkað en fjölskyldan hefur tapað um 75% af honum. Fyrir tveimur árum var auður fjölskyldunnar metinn á sem svarar til um 4.800 milljarða íslenskra króna en í Lesa meira

Ótrúlegur fundur í farangri ferðamanns – Lögregla, tollvörður, læknir og saksóknari kallaðir á vettvang

Ótrúlegur fundur í farangri ferðamanns – Lögregla, tollvörður, læknir og saksóknari kallaðir á vettvang

Pressan
06.08.2020

Öryggisverðir á flugvellinum í München í Þýskalandi gerðu ótrúlega uppgötvun á þriðjudaginn þegar þeir gegnumlýstu farangur 74 ára armenskrar konu sem fór um völlinn. Þeir þurftu að kalla til lögreglu, tollvörð, lækni og saksóknara vegna málsins. Við gegnumlýsinguna sást að í trékassa, sem konan var með, var hauskúpa af manni auk mannabeina. Bild skýrir frá Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af