fbpx
Föstudagur 19.desember 2025

Svíþjóð

Dýrkeypt hrekkjavökusamkvæmi hjá sænsku sjúkrahúsi – Fjórir sjúklingar létust

Dýrkeypt hrekkjavökusamkvæmi hjá sænsku sjúkrahúsi – Fjórir sjúklingar létust

Pressan
14.12.2020

Hrekkjavökusamkvæmi í lok október, hjá starfsfólki gjörgæsludeildar fyrir hjartasjúklinga á sjúkrahúsinu í Växjö í Svíþjóð, gæti hafa reynst dýrkeypt. Talið er að fjórir sjúklingar á gjörgæsludeildinni hafi látist í kjölfarið af völdum COVID-19. Strax eftir samkvæmið lagðist einn veislugestanna í veikindi, hann reyndist vera með COVID-19. Síðan veiktust fleiri starfsmenn gjörgæsludeildarinnar og smit bárust í sjúklinga. Sænska ríkisútvarpið skýrir Lesa meira

„Við þurfum hjálp,“ segir yfirmaður heilbrigðismála í Stokkhólmi – Gjörgæsludeildir nær fullar

„Við þurfum hjálp,“ segir yfirmaður heilbrigðismála í Stokkhólmi – Gjörgæsludeildir nær fullar

Pressan
10.12.2020

Ástandið vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar er slæmt í Svíþjóð og lítið sem ekkert hefur gengið að ná tökum á útbreiðslu veirunnar. Nú er svo komið í Stokkhólmi að 99% af gjörgæslurýmum eru full. Í Helsingborg verða margir kórónuveirusjúklingar að vera saman í herbergjum vegna skorts á plássi. „Við sjáum að það sem við töldum vera kúrfuna að fletjast út og Lesa meira

Skotinn til bana í Sundsvall

Skotinn til bana í Sundsvall

Pressan
08.12.2020

35 ára karlmaður var skotinn til bana í Sundsvall í Svíþjóð í gærkvöldi. Lögreglunni var tilkynnt um að særður maður hefði fundist um klukkan 20 í Skönsberg, sem er hverfi í bænum.. Maðurinn var strax fluttur á sjúkrahús en síðar um kvöldið tilkynnti lögreglan að hann væri látinn. Aftonbladet skýrir frá þessu. Segir blaðið að samkvæmt Lesa meira

Sænskur yfirlæknir – „Við höldum þetta kannski út í tvo mánuði til viðbótar“

Sænskur yfirlæknir – „Við höldum þetta kannski út í tvo mánuði til viðbótar“

Pressan
04.12.2020

Rúmlega 2.000 COVID-19-sjúklingar liggja nú á sænskum sjúkrahúsum en rúmlega 7.000 manns hafa látist af völdum COVID-19 í landinu síðan faraldurinn skall á. Heimsóknabann er á stærsta sjúkrahúsi Stokkhólms, sem er næststærsta sjúkrahús landsins, Karolinska en innandyra berjast læknar, hjúkrunarfræðingar og ekki síst sjúklingarnir upp á líf og dauða. Björn Persson, yfirlæknir á gjörgæsludeild sjúkrahússins segir álagið vera gríðarlegt. Lesa meira

Stokkhólmur – Grunuð um að hafa haldið syni sínum innilokuðum í 30 ár

Stokkhólmur – Grunuð um að hafa haldið syni sínum innilokuðum í 30 ár

Pressan
01.12.2020

Kona á áttræðisaldri hefur verið handtekin af lögreglunni í Stokkhólmi, grunuð um að hafa haldið syni sínum, sem er á fertugsaldri, innilokuðum í íbúð í um 30 ár. Það var ættingi sem komst á snoðir um að syninum væri haldið innilokuðum og gerði yfirvöldum viðvart. Manninum var strax komið undir læknishendur en hann er sagður Lesa meira

Stefan Löfven – „Það sem við gerum núna sker úr um hverjir verða enn hjá okkur um jólin“

Stefan Löfven – „Það sem við gerum núna sker úr um hverjir verða enn hjá okkur um jólin“

Pressan
23.11.2020

Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, flutti sjónvarpsávarp í gærkvöldi þar sem hann ræddi þá alvarlegu stöðu sem uppi er í landinu vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Hann sagði að allir landsmenn verði að leggja meira á sig til að þjóðin komist í gegnum faraldurinn. Tölur síðustu daga, varðandi faraldurinn, hafa verið skelfilegar í Svíþjóð. Nýtt met er sett nær Lesa meira

Kórónuveirufaraldurinn á mikilli siglingu í Svíþjóð – 96 létust á einum sólarhring

Kórónuveirufaraldurinn á mikilli siglingu í Svíþjóð – 96 létust á einum sólarhring

Pressan
19.11.2020

Frá þriðjudegi og fram á miðvikudag létust 96 af völdum COVID-19 í Svíþjóð. Þetta er mesti fjöldi andláta af völdum COVID-19 á einum degi í þrjá mánuði. Sænsk heilbrigðisyfirvöld skýrðu frá þessu í gær.  Frá upphafi heimsfaraldursins hafa rúmlega 6.300 látist af völdum COVID-19. Í gær voru 4.007 ný smit skráð. Í heildina hafa 196.446 greinst með veiruna fram Lesa meira

Fimmti hver Stokkhólmsbúi greinist nú með kórónuveiruna

Fimmti hver Stokkhólmsbúi greinist nú með kórónuveiruna

Pressan
10.11.2020

Samkvæmt nýjustu tölum frá heilbrigðisyfirvöldum í Stokkhólmi þá hefur fimmti hver íbúi borgarinnar, sem hafa farið í sýnatöku vegna gruns um kórónuveirusmit, greinst með veiruna. Johan Styrud, talsmaður samtaka lækna í Stokkhólmi segir að önnur bylgja veirunnar sé skollin á. Dagens Nyheter skýrir frá þessu. „Hlutfall smitaðra eykst hratt núna. Við sláum met í hverri viku, bæði í fjölda Lesa meira

Danir fara á svig við sóttvarnarreglur – Halda samkvæmi í Malmö

Danir fara á svig við sóttvarnarreglur – Halda samkvæmi í Malmö

Pressan
04.11.2020

Dönsk yfirvöld hafa gripið til harðra sóttvarnaraðgerða til að reyna að halda aftur af útbreiðslu kórónuveirunnar sem veldur COVID-19. Grímuskylda hefur verið sett á opinberum stöðum, fólki er ráðlagt að ferðast ekki út fyrir landsteinana og strangar fjöldatakmarkanir hafa verið settar og mega nú 10 manns koma saman í einu að hámarki. En sumir eiga erfitt með að Lesa meira

Slæmt ástand í Stokkhólmi vegna COVID-19 – „Við höfum misst tökin á þessu“

Slæmt ástand í Stokkhólmi vegna COVID-19 – „Við höfum misst tökin á þessu“

Pressan
03.11.2020

Frá því á föstudaginn fram á mánudag greindust rúmlega 3.000 íbúar í Stokkhólmi með kórónuveiruna sem veldur COVID-19. Þetta eru fleiri en greindust alla vikuna á undan. Á sama tíma fjölgaði sjúkrahúsinnlögnum vegna COVID-19 mikið. Þær voru 148 á föstudaginn en voru orðnar 203 í gær en þetta er 37% aukning. Expressen skýrir frá þessu. „Nú er þetta Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af