fbpx
Mánudagur 16.febrúar 2026
433Sport

Segist hafa verið brugðið við að sjá kröfur Sterling

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forráðamönnum Union Berlin var brugðið eftir að þeim bauðst að semja við Raheem Sterling á dögunum.

Sterling rifti samningi sínum við Chelsea á dögunum, en hann var launahæsti leikmaður félagsins en algjörlega úti í kuldanum.

Enski kantmaðurinn hefur síðan verið orðaður við félög á borð við West Ham, Fulham, Crystal Palace og Tottenham, en hefur enn ekki fundið sér nýtt félag.

Sterliing var sem fyrr segir boðinn til Union Berlin, en var það engan veginn raunhæft fyrir félagið að ráða við þann samning sem kappinn vildi. Stjórnarformaður félagsins segist hreinlega hafa þurft að nudda augun til að athuga hvort hann væri að sjá rétt, eins og hann sagði sjálfur.

Sterling á að baki langan og farsælan feril, einkum með Manchester City, þar sem hann vann meðal annars fjóra Englandsmeistaratitla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Láta City vita af verðmiðanum

Láta City vita af verðmiðanum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ólafur ræðir ítarlega um fyrstu mánuðina í Laugardal – „Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt“

Ólafur ræðir ítarlega um fyrstu mánuðina í Laugardal – „Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Áhugaverður landsliðshópur fyrir leiki gegn Spáni og Englandi – Tveir nýliðar

Áhugaverður landsliðshópur fyrir leiki gegn Spáni og Englandi – Tveir nýliðar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Breiðablik staðfestir kaupin á Ívari Erni

Breiðablik staðfestir kaupin á Ívari Erni
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrverandi starfsmaður Manchester United gagnrýnir leikmann liðsins – Segir hann hafa gjörbreyst með tímanum

Fyrrverandi starfsmaður Manchester United gagnrýnir leikmann liðsins – Segir hann hafa gjörbreyst með tímanum
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Vilja meina að þetta sé hrein og klár pilla á Manchester United

Vilja meina að þetta sé hrein og klár pilla á Manchester United
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Athæfi Ronaldo vekur athygli – Sjáðu myndbandið

Athæfi Ronaldo vekur athygli – Sjáðu myndbandið