Hvaða áhrif hefur kjör Joe Biden á samskiptin við Norður-Kóreu?
PressanStjórnvöld í Norður-Kóreu hafa ekki enn brugðist opinberlega við sigri Joe Biden í bandarísku forsetakosningunum. Sérfræðingar telja mjög ólíklegt að Biden hafi verið sá sem Kim Jong-un, einræðisherra í landinu, hafi viljað að sigraði. Donald Trump, núverandi forseti, hefur verið sér á báti meðal bandarískra forseta fyrir vilja hans til að eiga í persónulegum samskiptum Lesa meira
Endurtalningu er lokið í Georgíu – Úrslitin standa
PressanEndurtalningu atkvæða, sem voru greidd í forsetakosningunum, er lokið í Georgíu. Þar var ákveðið að telja öll atkvæðin aftur og nú í höndum vegna þess hversu litlu munaði á þeim Donald Trump og Joe Biden sem tókust á um forsetaembættið. Niðurstöður fyrri talningar standa óbreytt, Joe Biden sigraði í ríkinu. Gabriel Sterling, yfirmaður kjörstjórnar ríkisins, tilkynnti þetta seint í gærkvöldi. Um 5 milljónir atkvæða Lesa meira
Fundu áður ótalin atkvæði í Georgíu
PressanÍ tengslum við endurtalningu atkvæða í öllum 159 kjördæmum Georgíuríkis fundust rúmlega 2.700 áður ótalin atkvæði í gær. Atkvæðin eru öll úr sömu sýslunni, Floyd County. Innanríkisráðuneyti ríkisins skýrði frá þessu í gær. Samkvæmt frétt AP þá voru atkvæðin á minniskorti sem hafði ekki verið tekið með í fyrstu talningunni. Á minniskortinu voru 2.755 atkvæði og hafa Lesa meira
Biden óttast miklu fleiri dauðsföll af völdum COVID-19 ef Trump sýnir ekki samstarfsvilja
PressanJoe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, er pirraður á að Donald Trump, fráfarandi forseti, sýni engan samstarfsvilja í tengslum við yfirvofandi valdaskipti. Á fréttamannafundi í gær varaði Biden við því að miklu fleiri Bandaríkjamenn muni deyja af völdum COVID-19 ef Trump hætti ekki að koma í veg fyrir samstarf á milli núverandi stjórnar og komandi stjórnar. Á fréttamannafundinum, sem fór fram í Delaware, lét Biden óánægju sína Lesa meira
Fara gegn Trump – „Kosningarnar 3. nóvember voru þær öruggustu í sögu Bandaríkjanna“
Pressan„Kosningar 3. nóvember voru þær öruggustu í sögu Bandaríkjanna,“ þetta segir í niðurstöðu alríks- og ríkiskjörstjórna um framkvæmd kosninganna en yfirlýsing þeirra var birt í gærkvöldi að bandarískum tíma. Um er að ræða opinberar stofnanir og nefndir sem annast framkvæmd kosninga í landinu. Þær fara því gegn orðum Donald Trump, forseta, sem hefur ítrekað haldið því fram Lesa meira
Veðjaði einni milljón punda á sigur Joe Biden – Hefur ekki enn fengið vinninginn greiddan
PressanÞann 29. október síðastliðinn lagði svellkaldur fjárhættuspilari 1 milljón punda undir hjá Betfair Exchange, sem er stærsta veðmálasíða heims, um að Joe Biden myndi sigra í bandarísku forsetakosningunum. Hann hafði, eins og nú liggur fyrir, rétt fyrir sér en hefur ekki enn fengið vinninginn greiddan en hann á að fá milljónina sína aftur og 540.000 Lesa meira
Hann er maðurinn sem getur stöðvað allar tilraunir Biden til umbóta
EyjanLíklega er hann sá Repúblikani sem flestir á vinstri vængnum hata og telja vera sérstakan verndara stórkapítalista. Hann heitir Mitch McConnell og er leiðtogi Repúblikana í öldungadeildinni. Þar er hann í kjöraðstöðu til að kæfa endurbótaáætlanir Demókrata eða hleypa þeim í gegn. Kjósendur í Kentucky kusu þennan 78 ára íhaldsmann til setu í öldungadeild þingsins Lesa meira
Leyniþjónustan undirbýr sig undir sigur Joe Biden – Bætir við öryggisgæslu hans
PressanBandaríska leyniþjónustan, Secret Service, sem sér um öryggisgæslu háttsettra embættismanna landsins, þar á meðal forsetans, er nú að undirbúa sig undir sigur Joe Biden í forsetakosningunum. Nú þegar hefur verið ákveðið að senda liðsauka til Wilmington í Delaware til að styrkja öryggisgæsluna í kringum Biden. Washington Post skýrir frá þessu og hefur heimildarmönnum innan leyniþjónustunnar. Kosningaframboð Biden býr sig nú undir að lýsa yfir sigri í kosningunum og er Lesa meira
Trump með grófar ásakanir – Sjónvarpsstöðvar rufu útsendingu til að leiðrétta hann – Formaður kjörstjórnar hjólar í hann
EyjanDonald Trump, Bandaríkjaforseti, virðist vera maður sem veit að hann er á góðri leið með að tapa forsetakosningunum og leitar allra ráða til að ríghalda í völd sín. Hann flutti ávarp í gærkvöldi þar sem hann setti fram grófar ásakanir um kosningasvindl, án þess að leggja fram nokkrar sannanir fyrir þeim, og sakaði Demókrata um Lesa meira
Talningu er lokið í fyrsta kjördæminu í Bandaríkjunum – Biden fékk öll atkvæðin
EyjanÍ dag ganga Bandaríkjamenn að kjörborðinu og kjósa sér forseta til næstu fjögurra ára. Þeir kjósa einnig til þings og um eitt og annað í hinum ýmsu ríkjum. Talningu atkvæða í forsetakosningunum er lokið í Dixville Notch í New Hampshire. Joe Biden fékk öll greidd atkvæði. Tólf búa í bænum og fimm greiddu atkvæði. Það tók því ekki langan tíma að telja atkvæðin Lesa meira