Ólafur Þ. Harðarson: Keyptar fylgiskannanir líklega ástæðan fyrir því að Davíð og Jón Baldvin guggnuðu báðir á forsetaframboði 1996
EyjanÓlafur Þ. Harðarson, fyrrverandi prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að sér hafi skjátlast hrapallega um möguleika Ólafs Ragnars Grímssonar á að ná kosningu sem forseti þegar fyrst var farið að ræða mögulegt framboð hans 1996. Hann telur að Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson hafi ákveðið að bjóða sig ekki fram vegna þess Lesa meira
Skiptar skoðanir um seinkun skóladagsins í nýrri könnun
FréttirFræðslunefnd Ísafjarðarbæjar lét gera könnun um hvort seinka ætti skóladeginum hjá unglingastigi til reynslu. Flestir vilja að skóladagurinn hefjist klukkan 8:40. Reykjavíkurborg hefur þegar ákveðið að seinka skóladeginum og mun hann hefjast klukkan 8:50 í fyrsta lagi. Sú breyting tekur gildi á næsta skólaári. Könnunin var lögð fyrir nemendur, foreldra og kennara við Grunnskólann á Lesa meira
Orkubúið ætlaði að loka fyrir rafmagn til Kampa – Skuldin sögð nema tugum milljóna
FréttirOrkubú Vestfjarða hugðist loka fyrir rafmagn til rækjuverksmiðjunnar Kampa á Ísafirði eftir að fyrirtækið hætti að greiða af skuld sinn. Morgunblaðið skýrir frá þessu og fékk þetta staðfest hjá Elíasi Jónatanssyni, Orkubússtjóra. Blaðið segist hafa heimildir fyrir að skuldin hafi numið tugum milljóna en Elías vildi ekki tjá sig um það. Rækjuvinnslan fékk greiðslustöðvun til Lesa meira
Segir bókhald Kampa hafa byggst á skáldskap í langan tíma
FréttirEins og fram kom í fréttum fyrir helgi þá á rækjuverksmiðjan Kampi á Ísafirði í miklum fjárhagsvandræðum og hefur fengið greiðslustöðvun til þriggja vikna. Staða fyrirtækisins er mun verri en áður var talið og má rekja ástæðuna til þess að bókhald fyrirtækisins hefur verið ranglega fært um nokkurra ára skeið. Morgunblaðið skýrir frá þessu í Lesa meira
Samið um starfslok við bæjarstjóra Ísafjarðar – Lætur þegar af störfum
EyjanMeirihlutinn á Ísafirði, sem samanstendur af Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum, hefur samið um starfslok við Guðmund Gunnarsson, bæjarstjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ísafjarðarbæ. Guðmundur var ráðinn í ágúst árið 2018 en alls 13 sóttu um stöðuna. Í tilkynningu er sagt að ágreiningur hafi verið um áherslur og því hafi þetta orðið lausnin. Kristján Þór Lesa meira
Bæjarstjóra blöskrar Brot á RÚV: „Ég trúi því ekki að ég sé að tuða yfir þessu“
EyjanBæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Guðmundur Gunnarsson, gerir athugasemdir við hvernig landsbyggðin er túlkuð í spennuþættinum Brot sem sýndur er á RÚV. Hann greinir frá þessu á Facebook: „Fínir þættir en mikið óskaplega er hún alltaf þreytandi þessi lúðaímynd landsbyggðarinnar í íslensku sjónvarpsefni. Ófærð var slæm en þetta er eiginlega kjánalegt,“ segir Guðmundur, sem sjálfur er vestfirðingur. Treggáfuð Lesa meira
Bæjarstjóri gagnrýnir kollega sinn fyrir skuldbindingafælni í Ástarvikunni: „Dæmigerður Bolvíkingur“
EyjanNorðanverðir Vestfirðir, sem heimamenn kalla gjarnan Villta vestrið, loga nú í deilum vegna lögbundinna sameiningaáforma ríkisstjórnarinnar. Bolvíkingar hafa ávallt verið andvígir öllum sameiningaráformum við Ísafjarðarbæ og bæjarstjóri Bolungarvíkur, Jón Páll Hreinsson, sagði við RÚV í gær að nú væri komin auka hvatning til þess að fá heimamenn til að fjölga sér, en nú stendur einnig yfir Lesa meira
Kaup Ólafs Ragnars á æskuheimili sínu á Ísafirði ekki gengin í gegn
EyjanÓlafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, er á vefmiðlum í dag sagður vera að festa kaup á æskuheimili sínu á Ísafirði, að Túngötu 3. Húsið var byggt á Hatteyri eftir teikningum Jóns H. Sigmundssonar um aldamótin 1900 af norskum sjómönnum, en tekið niður og endurbyggt við Túngötuna, hvar það var stækkað. Húsið er gjarnan nefnt Lesa meira
Bæjarstjóri bendir á sláandi staðreynd: „Á Vestfjörðum brennum við 500 tonnum af díselolíu til að framleiða rafmagn“
EyjanÁ Vestfjörðum fer rafmagnið 60-80 sinnum á ári. Þegar það gerist taka varaaflsstöðvar við. Sú nýjasta er í Bolungarvík, en hún komst í gagnið árið 2015. Varaaflsstöðvarnar á Vestfjörðum brenna árlega um 500 tonnum af díselolíu við framleiðslu rafmagns og spyr Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, hvort slíkt sé ásættanlegt og eðlilegt að svo lítið hafi Lesa meira
Grunur um milljónafjárdrátt frá skjólstæðingum velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar
FréttirLögreglan á Vestfjörðum er nú að rannsaka meintan fjárdrátt starfsmanns velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar. Starfsmaðurinn er grunaður um að hafa dregið sér fé á þriggja ára tímabili. Talið er að hann hafi dregið sér fé af reikningum skjólstæðinga velferðarsviðsins en hann hafði aðgang að þeim í gegnum störf sín fyrir bæjarfélagið. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Lesa meira