Biðst afsökunar og lætur sig hverfa af X - Hvatti til að kjarnorkuvopn væru gerð klár
Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins hefur beðist afsökunar á því að hafa hvatt forseta Frakklands til að senda hermenn til Úkraínu og láta gera kjarnorkuvopn klár til notkunar. Hefur hann nú eytt reikningi sínum á samfélagsmiðlinum X þar sem hann lét þessi orð falla.