Taílendingar sárhneykslaðir á konungi sínum – Flúði COVID-19 til Þýskalands með 20 frillum
PressanMaha Vajiralongkorn, hinn 67 ára konungur Taílands, á á brattann að sækja hvað varðar almenningsálitið í heimalandinu þessa dagana. Ástæðan er að hann ákvað að flýja COVID-19 faraldurinn og fara til Þýskalands. Þar hefur hann leigt öll herbergin á lúxushótelinu Grand Hotel Sonnenbichl. Bild er meðal þeirra þýsku fjölmiðla sem skýra frá þessu. Fram kemur Lesa meira
Yngsta fórnarlamb COVID-19 í Evrópu var sent heim til að deyja
PressanYngsta fórnarlamb COVID-19 faraldursins í Evrópu er 12 ára belgísk stúlka sem lést í vikunni. Stúlkan hét Rachel og var frá Ghent. Móðir hennar fór með hana til læknis þegar hún fékk hita. Læknirinn taldi hitann vera ofnæmisviðbrögð og sendi hana heim og lét hana fá lyf til að takast á við hitann. Samkvæmt frétt Lesa meira
Óvænt uppgötvun í gamalli hlöðu kemur danska heilbrigðiskerfinu vel
PressanEftir að COVID-19 faraldurinn braust út jókst eftirspurnin eftir handspritti gríðarlega og erfitt hefur verið að anna eftirspurn á köflum. Þetta hefur orðið til þess að verðið hefur víða rokið upp. Í Helsingør í Danmörku var staðan þannig nýlega að bæjarfélagið varð að greiða 325 danskar krónur fyrir hverja flösku af handspritti. Frederiksborg Amts Avis Lesa meira
Rúmlega 5.000 hafa látist í Bandaríkjunum af völdum COVID-19 – 884 létust á síðasta sólarhring
PressanSíðasta sólarhring létust 884 af völdum COVID-19 í Bandaríkjunum. Þetta er mesti fjöldi dauðsfalla á einum sólarhring af völdum veirunnar í Bandaríkjunum. Heildarfjöldi látinna af völdum veirunnar er því kominn yfir 5.000 í landinu. Þetta kemur fram í nýjasta uppgjöri Johns Hopkins háskólans. Í heildina hafa rúmlega 213.000 Bandaríkjamenn greinst með smit. 8.000 hafa náð Lesa meira
59 létust af völdum COVID-19 í Svíþjóð síðasta sólarhring
Pressan59 manns létust af völdum COVID-19 í Svíþjóð síðasta sólarhringinn. Alls hafa 239 manns látist af völdum veirunnar þar í landi. Á mánudaginn létust 34 af völdum veirunnar. Anders Tegnell, hjá Folkhälsomyndigheten (Landlæknisembætti þeirra Svía), sagði að ef horft er á þróunina síðasta mánuðinn í Svíþjóð sé kúrvan frekar flöt en nú stígi hún mjög Lesa meira
Þetta er ástæðan fyrir að dánartíðni af völdum COVID-19 er mjög lág í Þýskalandi
PressanÁ heimsvísu látast að meðaltali um 5 prósent þeirra sem greinast smitaðir af COVID-19 en í Þýskalandi er staðan allt önnur. Þar er dánarhlutfallið nú tæplega hálft prósent. Ástæðan fyrir þessu er að sögn að Þjóðverjar hafa allt frá upphafi tekið mikið af sýnum úr fólki og því getað staðfest smit snemma. Rétt rúmlega helmingur Lesa meira
Danska ríkisstjórnin fær auknar heimildir frá þinginu – Getur nú bannað fleiri en tveimur að vera saman
PressanDanska þingið samþykkti í gærkvöldi lög, sem voru lögð fram í miklum flýti, sem heimila ríkisstjórninni að banna fleiri en tveimur að vera saman ef þörf þykir á vegna COVID-19 faraldursins. Mikill stuðningur var við frumvarpið, þvert á flokka, en 96 greiddu því atkvæði enginn greiddi atkvæði gegn því. Allir viðstaddir þingmenn samþykktu því frumvarpið. Lesa meira
114 heilbrigðisstarfsmenn í Kaupmannahöfn smitaðir af COVID-19
PressanÍ morgun var skýrt frá því að 114 heilbrigðisstarfsmenn í Kaupmannahöfn séu smitaðir af COVID-19. Flestir starfa þeir á sjúkrahúsum í borginni. Danska ríkisútvarpið skýrði frá þessu. Fram kemur að tölurnar séu frá 29. mars og nái aðeins yfir staðfest smit. Á sama tíma var staðfest að 1.214 manns í Kaupmannahöfn séu smitaðir af veirunni. Lesa meira
Trump – „Ég veit meira en nokkur annar um Suður-Kóreu“ Síðan kom staðleysan
PressanDonald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur tröllatrú á sjálfum sér og telur sig vita margt miklu betur en allir aðrir. Þetta kom greinilega í ljós á fréttamannafundi á mánudaginn. Þá spurði Yamiche Alcindor, fréttamaður PBS NewsHour, Trump af hverju ekki væru tekin jafn mörg sýni í Bandaríkjunum og í Suður-Kóreu í tengslum við COVID-19 faraldurinn. Trump gaf Lesa meira
Sögulegt samkomubann sett á Íslandi – „Fordæmalausir tímar kalla á fordæmalaus viðbrögð“
EyjanSamkomubann verður sett á á Íslandi þann 15. mars.. Er það í fyrsta skipti sem það er gert í lýðveldissögunni. Þetta er gert til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu Covid-19 sjúkdómsins. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Samkomubannið tekur gildi á miðnætti aðfararnótt Lesa meira