

Hagar hafa ráðið Lilju Kristínu Birgisdóttur til starfa sem markaðs- og upplifunarstjóra á sviði viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá fyrirtækinu.
Lilja mun gegna lykilhlutverki í áframhaldandi uppbyggingu og miðlun á nýju vildarkerfi Haga, Takk, og vinna náið með rekstrareiningum félagsins að því að efla heildstæða upplifun viðskiptavina. Hún mun jafnframt styðja við markaðs- og vörumerkjamál nýrrar rekstrareiningar, Hagar Miðlar, eins og segir í tilkynningu.
Lilja býr yfir víðtækri reynslu á sviði markaðs- og sölumála og stafrænnar þróunar. Í fyrri störfum hefur Lilja leitt vörumerkjauppbyggingu þvert á ólíka geira og gegnt leiðandi hlutverkum hjá fyrirtækjum á borð við Sýn, Indó og Krónunni. Síðast starfaði hún sem markaðsstjóri alþjóðamarkaða hjá 66°Norður.
„Það eru spennandi verkefni framundan hjá Högum og ég hlakka mikið til að takast á við þau með öflugu teymi. Uppbygging vildarkerfisins Takk og áframhaldandi þróun stafrænna lausna felur í sér mikil tækifæri til að efla tengsl og skapa aukið virði fyrir viðskiptavini um allt land,“ segir Lilja.
„Það er virkilega ánægjulegt að fá Lilju Kristínu til starfa á nýju sviði hjá Högum. Hún býr yfir víðtækri reynslu úr smásölu og stafrænum verkefnum sem mun nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu vildarkerfisins Takk og þróun nýrra tekjustrauma innan Haga Miðla,“ segir Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum.