

Blásið hefur verið til leiks í fyrsta leik Evrópumótsins í handbolta í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Um er að ræða leik Spánar og Serbíu í A-riðli mótsins en hann hófst í Herning í Danmörku klukkan 17 að íslenskum tíma og er leikurinn í beinni útsendingu á RÚV.
Íslenska dómaraparið Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson fá þann heiður að dæma opnunarleikinn en þeir hafa fengið sífellt fleiri verkefni utan landssteinanna á undanförnum árum og fer vegur þeirra vaxandi við hverja raun.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd voru Anton og Jónas brattir skömmu fyrir leik en þeir njóta styrkrar leiðsagnar sálfræðingsins kunna Jóhanns Inga Gunnarssonar sem heldur utan um andlega styrktarþjálfun dómarapara mótsins eins og mörg undanfarin stórmót.
Jóhann Ingi átti glæstan feril sem handboltaþjálfari en hann var meðal annars landsliðsþjálfari Íslands auk þess að stýra þýsku stórliðunum Kiel og Essen. Gerði Jóhann Ingi síðarnefnda liðið að Þýskalandsmeisturum árið 1987.
Eftir að þjálfaraferlinum lauk hefur Jóhann Ingi einbeitt sér að rekstri sálfræðistofu sinnar, þar sem hann hefur aðstoðað fjölmarga afreksmenn í íþróttum, auk þess sem hann er afar vinsæll fyrirlesari þar sem hann blandar saman sálfræðiþekkingu sinni og reynslu úr heimi afreksíþrótta.
Ljóst er því að Anton og Jónas njóta góðrar leiðsagnar við að takast á við þau krefjandi verkefni sem framundan.
Íslenska handboltalandsliðið hefur síðan leik á mótinu á morgun en Ítalía verður fyrsti andstæðingur liðsins og hefst hann klukkan 17.