,,Ég held að þetta sé bara ekki neitt að lagast, heldur bara versna. Það rignir ekki rassgat,“ sagði veiðimaður sem var að koma af veiðislóðum, þurrkslóðum þar sem lítið var að hafa nema gott sólblað og nokkur ber. Annað var það ekki.
Ástandið er því miður ekki að lagast fyrir fimm aura, meðan ekkert rignir og laxinn sést lítið.
En nýjustu tölur voru að koma í hús og þar er Eystri Rangá langefst með um 1250 laxa, síðan kemur Urriðafoss í Þjórsá með 650 laxa, svo Miðfjarðará með um 500 laxa. Í Ytri Rangá hafa veiðst 490 laxar og svona mætti lengi telja. Margar laxveiðiár eru ekki svipur hjá sjón ef við skoðum síðustu ár.
En það er ennþá von stækkandi straumur og einn og einn dropi í kortunum, varla meira. Sjáum hvað gerist.
Mynd. Þessi mynd lýsir stöðunni sæmilega en myndin er tekin á Snæfellsnesi. Mynd María.