fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Pressan

Tekinn af lífi fyrir svívirðilegan glæp – „Loksins er þessu lokið“

Pressan
Miðvikudaginn 18. mars 2026 09:30

Denise og Nathan.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem sakfelldur var fyrir nauðgun og morð á 21 árs móður árið 2008 var tekinn af lífi með banvænni sprautu í Flórída í gærkvöldi.

Maðurinn, Michael Lee King, 54 ára, var úrskurðaður látinn klukkan 18:13 að staðartíma í ríkisfangelsinu í Flórída nærri bænum Starke, að sögn yfirvalda. Hann hafði verið sakfelldur fyrir morð af yfirlögðu ráði, mannrán og kynferðisofbeldi vegna morðsins á Denise Amber Lee í borginni North Port í janúar 2008.

Samkvæmt gögnum málsins var Lee fyrir utan heimili sitt ásamt tveimur ungum sonum sínum þegar King ók framhjá, kom auga á hana og rændi henni. Börnin voru skilin eftir ein heima. Rannsakendur segja að hann hafi farið með hana heim til sín, bundið hana og nauðgað henni.

Á meðan hún var bundin í bifreið hans tókst henni að ná í farsíma árásarmannsins og hringja í neyðarlínuna, 911. Hún grátbað um að send yrði aðstoð, en allt kom fyrir ekki. Áður en yfir lauk ók Michael henni á afskekktan stað þar sem hann skaut hana til bana og gróf lík hennar.

King var tekinn af lífi í gærkvöldi.

Lögreglu tókst að hafa hendur í hári Michaels ekki löngu síðar þar sem lýsing á bifreið hans, 1994 árgerð af Chevrolet Camaro, passaði við lýsingu úr öðru neyðarlínusímtali sem hafði borist. Kona hafði þá heyrt öskur úr bílnum á rauðu ljósi og haft samband við lögreglu.

Rannsakendur fundu síðar hár og persónulega muni Lee á heimili Kings og í bifreið hans. Málið vakti mikla reiði almennings og leiddi til lagabreytinga í Flórída. Nokkrum mánuðum eftir morðið samþykkti löggjafarþing ríkisins einróma svokölluð Denise Amber Lee-lög, sem miða að bættri þjálfun starfsfólks neyðarlínunnar.

Rannsókn hafði nefnilega leitt í ljós að upplýsingar úr þeim símtölum sem bárust lögreglu skiluðu sér ekki rétt eða tímanlega til lögreglunnar á svæðinu. Talið er að allt að fimm neyðarlínusímtöl hafi borist vegna hvarfs Denise.

Eiginmaður Denise, Nathan Lee, sagði eftir aftökuna að honum væri létt að ákveðnu leyti. „Loksins er þessu lokið, það er búið að loka þessum kafla,” sagði hann og hrósaði saksóknurum í málinu.

Sjóður sem hann stofnaði eftir morðið hefur allt frá árinu 2008 unnið að umbótum í neyðarlínukerfinu. Nathan segir að hann muni halda áfram því starfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Þetta geri ég aldrei í svefnherberginu“

„Þetta geri ég aldrei í svefnherberginu“