fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Pressan

Dómari þurfti að ógilda réttarhöld vegna krúttlegrar boðflennu sem ráfaði inn á óheppilegum tíma

Pressan
Föstudaginn 13. mars 2026 15:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómari í Pennsylvaníu hefur ógilt réttarhöld yfir karlmanni sem hefur verið ákærður fyrir að drepa hund nágranna síns, en ógildingin var að kröfu verjanda hins ákærða sem taldi að boðflenna í herbergi kviðdóms hefði orðið til þess að efast mætti um hlutleysi kviðdómenda.

Meintum geranda, Robert Wallish III, er meðal annars gert að sök að hafa drepið labradorhundinn Hemi við veiðikofa sinn árið 2024. Wallish viðurkennir að hafa heyrt urr í hundi og brugðist við því með því að skjóta. Hann hafi ekki áttað sig á því að um hund væri að ræða fyrr en það var um seinan.

„Mér leið hræðilega því þetta var hundur. Mér leið ömurlega. Ég elska hunda.“

Eftir að hafa notað vasaljós til að sannreyna að hann hefði hæft hundinn náði Wallish í ruslapoka. Hann kom hæri hundsins fyrir í pokanum, ók svo um 5 kílómetra frá heimili sínu og losaði sig við pokann.

Undir rekstri málsins átti sér stað óhepplegt atvik þegar einn loðinn starfmaður dómstólsins villtist inn í dómsal. Starfsmaðurinn kallast Clark og starfar hann sem meðferðarhundur hjá hinu opinbera. Clark var staddur í dómshúsinu þennan dag með umsjónarmanni sínum frá skilorðseftirlitinu. Svo óheppilega vildi til að taumur Clarks losnaði sem varð til þess að hann þaut inn í herbergið þar sem kviðdómendur voru að ráða ráðum sínum. Kviðdómendur tóku þessari óvæntu boðflennu vel og létu vel að honum.

Þegar verjandi Wallish frétti af boðflennunni fór hann fram á fund með dómaranum. Ekki væri öruggt að kviðdómendur gætu gætt hlutleysis í þessu tiltekna máli. Kviðdómendur væru að meta hvort refsa skyldi Wallish fyrir að hafa drepið labrador-hund, en Clark er einnig labrador. Þessi óvænta heimsókn væri því til þess fallin að hafa áhrif á kviðdóm, Wallish í óhag. Dómari tók undir og ákvað að ógilda réttarhöldin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þrjóski fjársjóðsleitarmaðurinn laus úr fangelsi – Gullpeningarnir enn ófundnir

Þrjóski fjársjóðsleitarmaðurinn laus úr fangelsi – Gullpeningarnir enn ófundnir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lést af sárum sínum eftir að sjúkrabílnum var stolið – Fjölskyldan krefst 5 milljarða í skaðabætur

Lést af sárum sínum eftir að sjúkrabílnum var stolið – Fjölskyldan krefst 5 milljarða í skaðabætur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kínverskir vísindamenn kynna rafhlöðu sem gæti tvöfaldað drægni rafbíla

Kínverskir vísindamenn kynna rafhlöðu sem gæti tvöfaldað drægni rafbíla
Pressan
Fyrir 4 dögum

Vinsæll kennari lést eftir að hrekkur nemenda fór úr böndunum

Vinsæll kennari lést eftir að hrekkur nemenda fór úr böndunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Saga Betty og Barney Hill skók heimsbyggðina – Hvað gerðist í raun og veru?

Saga Betty og Barney Hill skók heimsbyggðina – Hvað gerðist í raun og veru?