fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Pressan

Ekkja kennarans sem lést stígur fram og lýsir því sem hún vill að gerist

Pressan
Þriðjudaginn 10. mars 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiginkona bandaríska framhaldsskólakennarans Jason Hughes sem lést eftir að hrekkur nemenda hans fór hörmulega úrskeiðis hefur beðið um að allar kærur gegn nemendunum sem komu að málinu verði felldar niður.

Atvikið átti sér stað á fimmtudagskvöld þegar hópur nemenda kom að heimili Hughes og dreifði klósettpappír yfir lóðina við hús hans. Nemendur voru í svokölluðu „junior/senior“-stríði þar sem yngri og eldri nemendur safna stigum með allskonar hrekkjum.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu gekk Hughes út úr húsi sínu til að ræða við ungmennin þegar hann varð var við þau. Hann er sagður hafa hrasað og dottið á götuna um það leyti sem pallbíl, sem átján ára nemandi ók, var ekið af stað. Ók nemandinn bílnum yfir Hughes sem lést á sjúkrahúsi af meiðslum sínum.

Sjá einnig: Ekkja kennarans sem lést stígur fram og varpar sprengju

Ekkja Hughes segir eiginmann sinn hafa elskað nemendurna og jafnvel verið spenntan að grípa þá glóðvolga við hrekkinn.

Að sögn yfirvalda gekk Hughes út úr húsinu um klukkan 23:40 og fór að bílum þar sem fimm ungmenni voru að setjast inn til að aka á brott. Þegar hann nálgaðist rann hann til á blautum vegi, féll út á götuna og varð fyrir pallbíl sem eitt ungmennanna ók.

Ungmennin stöðvuðu þegar í stað og veittu Hughes skyndihjálp þar til sjúkraflutningamenn komu á vettvang.

Átján ára piltur sem ók bílnum, Jayden Wallace, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi með ökutæki og á yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsisdóm. Hin fjögur, Elijiah Owens, Aiden Hucks, Ana Katherine Luque og Ariana Cruz, einnig 18 ára, voru einnig handtekin á staðnum.

Eiginkona Hughes, Laura, sem starfar sem stærðfræðikennari við sama framhaldsskóla, segir fjölskylduna styðja að allar ákærur verði felldar niður.

„Þetta er hræðilegur harmleikur og fjölskylda okkar er staðráðin í að koma í veg fyrir að annar harmleikur verði til með því að eyðileggja líf þessara nemenda,“ sagði hún í samtali við New York Times. Hún bætti við að slíkt væri andstætt þeirri ævilöngu köllun eiginmanns hennar að styðja við og leiðbeina ungu fólki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Í gær

Það hvernig þú drekkur kaffi afhjúpar lítt þekkta hlið á persónuleikanum

Það hvernig þú drekkur kaffi afhjúpar lítt þekkta hlið á persónuleikanum
Pressan
Í gær

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“
Pressan
Í gær

Sérfræðingur segir marga drekka kaffi á röngum tíma dagsins

Sérfræðingur segir marga drekka kaffi á röngum tíma dagsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ráðgátan um prinsana í turninum – Hvað gerðist?

Ráðgátan um prinsana í turninum – Hvað gerðist?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ekki sjóða brokkolí í vatni – Þessi aðferð er miklu betri að sögn kokks

Ekki sjóða brokkolí í vatni – Þessi aðferð er miklu betri að sögn kokks
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sálfræðingur hefur efasemdir um andlega heilsu Trump – „Við erum með mann með heilabilun“

Sálfræðingur hefur efasemdir um andlega heilsu Trump – „Við erum með mann með heilabilun“