fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

MAGA-þingmaður reyndi að skjóta á vinstrimenn en klúðraði því rækilega – „Ó, kæri Mike“

Pressan
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 12:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öldungadeildarþingmaðurinn og MAGA-liðinn Mike Lee elskar samfélagsmiðla og þá sérstaklega X sem áður kallaðist Twitter. Hann birtir gjarnan færslur af mikilli hvatvísi og hefur ítrekað þurft að eyða færslum sem þykja fara langt yfir strikið.

Sem dæmi má nefna að í fyrra eyddi hann færslum sem hann hafði ritað eftir að kjörinn fulltrúi demókrata, Melissa Hortman, og eiginmaður hennar voru skotin til bana á heimili sínu í Minnesota.

Lee birti þá færslur þar sem hann reyndi að kenna vinstrimönnum um morðin. Kallaði hann morðin í einni færslu Martröð á Waltz-götu, en þar var um orðaleik að ræða. Vísaði hann þar annars vegar til hryllingsmyndarinnar Nightmare on Elm Street og hins vegar til ríkisstjóra Minnesota, Tim Waltz. Lee sagði svo í annarri færslu: „Þetta er það sem gerist… þegar Marxistar fá ekki sínu fram.“

Eftir að í ljós kom að morðinginn var stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta eyddi Lee færslunum en skaðinn var skaður. Sjónvarpsmaðurinn Lawrence O’Donnell sagði í kjölfarið að öldungardeildarþingmaðurinn væri vanstilltur og ætti greinilega erfitt með að sýna mennsku. „Það er ekki heilbrigt að birta 100 tíst á dag. Enginn bandarískur öldungardeildarþingmaður sem er í alvörunni að sinna þeirri vinnu sem öldungardeildarþingmenn gera hefur tíma til að birta 100 tíst á dag, eða jafnvel bara 10 tíst.“

Nú hefur Lee aftur birt vanhugsaða færslu. Þar birti hann myndir af liðsmönnum glæpasamtaka í Mexíkó sem voru grímuklæddir að kveikja í bensínstöð en ofbeldisalda gengur nú yfir Mexíkó eftir að herinn felldi eiturlyfjabaróninn Nemesio Oseguera, eða El Mencho eins og hann var kallaður. El Mencho var leiðtogi Jalisco New Generation-glæpasamtakanna og undirmenn hans voru ekki lukkulegir með að missa leiðtoga sinn.

Lee ákvað fyrir einhverja ástæðu að birta myndina og setja hana í samhengi við aðgerðir tolla- og innflytjendaeftirlits Bandaríkjanna, ICE.

„Meðlimir glæpasamtaka eru með grímur. Vinstrimenn eru ekki að kvarta.“

Vísaði öldungardeildarþingmaðurinn þarna til þess að ICE-fulltrúar hafa fengið leyfi til að vera með grímur.

Þetta skot Lee á vinstrimenn þótti frekar illa heppnað. Leiðtogi minnihlutans í öldungardeildinni, Chuck Schumer, svaraði Lee í færslu og skrifaði:

„Einmitt. Glæpamenn eru með grímur. Þess vegna ætti ICE ekki að gera það.“

Öldungadeildarþingmaður Connecticut, Chris Murphy, skrifaði:

„Ó, kæri Mike. Ég gæti bókstaflega ekki fært betri rök fyrir en þú gerir. Vondu karlarnir eru með grímur. Góðu karlarnir gera það ekki.“

Brian Schatz, öldungardeildarþingmaður Hawaii, tekur í sama streng og segir að ICE ætti að fylgja sömu viðmiðum og lögreglumenn frekar en glæpamenn.

Lee hefur nú eytt færslu sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér