fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Móðir á yfir höfði sér 15 ára fangelsi eftir að hún skildi 1 árs son sinn eftir í sjóðheitum bíl á meðan hún fékk bótox í varirnar

Pressan
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 21:00

Maya og sonur hennar. Myndir: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maya Hernandez, tvítug móðir tveggja ungra drengja, bíður nú dómsuppkvaðningar í Bakersfield í Kaliforníu í máli tengdu andláti eins árs gamals sonar hennar síðasta sumar.

Maya skildi drenginn og tveggja ára bróður hans úti í bíl í miklum hita á meðan hún gekkst undir tveggja og hálfs tíma fegrunaraðgerð á snyrtistofu. Fékk hún bótox-fyllingu í varir.

Drengurinn lést af ofhitnun en þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var hann með froðu í munnvikunum. Ekkert amaði hins vegar að eldri bróður hans.

Maya sagði í yfirheyrslu lögreglu síðasta sumar að hún hefði skilið bílinn eftir í gangi og loftkælingu á fullu. Lögregla taldi hins vegar að bíllinn hefði drepið sjálkrafa á sér til að spara eldsneyti. Afar heitt var í veðri þennan dag og samkvæmt lögregluskýrslum gæti hitinn í kyrrstæðum bílnum hafa náð upp í allt að 60 gráður á celsíus.

Maya játaði sekt samkvæmt ákæru og bíður núna dóms. Hún á yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi.

Sjá nánar hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér