fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Andrés hefur ekki borgað penný til baka af láninu fyrir sáttagreiðslunni til Virginia Guiffre

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn forsmáði Andrew Mountbatten-Windsor, sem kallaður var Andrés Bretaprins áður en hann var sviptur opinberum titlum sínum, hefur ekki greitt eitt penný til baka af tæplega 12 milljóna punda láni sem hann fékk frá fjölskyldu sinni til að standa straum af sáttagreiðslu til Virginia Giuffre, sem varð til þess að hún felldi niður málsókn gegn honum. The Sun greinir frá.

Virgina Giuffre, sem var ein af mansalsþolendum Jeffrey Epstein, sakaði Andrew um að hafa brotið kynferðislega gegn sér er hún var 17 ára. Hún stefndi honum í einkamáli sem var fellt niður í kjölfar sáttagreiðslunnar, sem er andvirði um tveggja milljarða íslenskra króna.

Andrew fékk 7 milljónir punda að láni frá móður sinni heitinni, Elísabetu Englandsdrottingu, 3 milljónir úr dánarbúi föður síns, Filippus prins, og bróðir hans, Karl konungur, lánaði honum 1,5 milljónir punda.

Samkvæmt frétt The Sun ætlaði Andrew að fjármagna endurgreiðslu lánanna með sölu á skíðaskála sem hann átti í Sviss. En hann fékk ekkert út úr sölunni vegna veðskulda sem hvíldu á eigninni.

Skuldar hann því fjölskyldunni enn þessar tæpu 12 milljónir punda.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér