
34 ára karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa geymt dauða hvolpa og 19 ára konu í U- Haul flutningabíl. Konan sagðist hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi af hálfu mannsins og fjórir af sjö hundum fundust dauðir.
Lögreglumenn hjá lögreglunni í Groton City í Connecticut í Bandaríkjunum fengu tilkynningu um dýravelferðarmál og brugðust við tilkynningu á mótel þar í bæ um klukkan 10:30 að staðartíma þann 3. febrúar, að sögn yfirvalda í fréttatilkynningu sem birt var á Facebook.
Eftir að lögreglan kom á vettvang fann hún U-Haul sendibíl með byrgðum gluggum og inni í bílnum fann lögreglan sjö hunda, fjóra dauða og þrjá á lífi, sem og 19 ára gamla konu.
Konan sagði yfirvöldum að hún hefði verið beitt líkamlegu ofbeldi og hún tilkynnti mann, sem síðar voru borin kennsl á sem James Williams, sem meintan geranda.
Lögreglan fann Williams, 34 ára, í kjölfarið. Yfirvöld sögðu að á honum hefðu fundist metamfetamín og fíkniefnaáhöld, sem og mörg persónuskilríki hinna ýmsu kvenna.

Williams var handtekinn og ákærður fyrir sjö ákærur um dýramisnotkun, ofbeldi gegn einstaklingum, vörslu fíkniefna, vörslu fíkniefnaáhalda, afskipti af lögreglumanni og rekstur án tilskilinna réttinda og hann stendur einnig frammi fyrir ákæru um líkamsárás af öðru stigi og ákæru um gáleysi af fyrsta stigi.
Í fréttatilkynningu lögreglunnar kom fram að trygging Williams væri ákveðin 250.000 dalir í reiðufé, en fangaskrár frá fangelsismálastofnun Connecticut sýna að hún tvöfaldaðist í 500.000 dali.
Williams átti að mæta fyrir rétt 4. febrúar, daginn eftir handtöku sína. Það er ekki ljóst hvort hann er enn í haldi lögreglu eða hvort hann er kominn með verjanda.
Dýraeftirlitið í Groton Town lagði hald á hundana þrjá sem voru á lífi. Hundarnir fjórir sem voru dauðir verða krufðir til að ákvarða nákvæma dánarorsök þeirra, að sögn lögreglunnar.