
Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, Karoline Leavitt, segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi ekki mismælt sig þegar hann nefndi Ísland ítrekað í ræðu sinni á Alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos í gær. Hann hafi verið að vísa til þess að Grænland sé stykki af klaka. Þetta sagði fjölmiðlafulltrúinn á samfélagsmiðlum þar sem hún svarar réttaritara News Nations sem hélt því fram að forsetinn hefði í ræðu sinni ruglast á löndum.
„Nei, hann gerði það ekki,“ skrifaði fjölmiðlafulltrúinn og deildi mynd af klaka á Grænlandi. „Hann vísaði til Grænlands sem klakastykkis, sem er það sem það er. Þú ert sá eini sem ert að ruglast eitthvað hér.“
Trump minntist ítrekað á Ísland í ræðu sinni (e. Iceland). Fyrst minntist hann á Ísland í tengslum við Úkraínustríðið og tilraunir hans til að stilla þar til friðar. „En með því að gera það er ég að hjálpa Evrópu, hjálpa NATO og þangað til nú síðustu daga… þegar ég sagði þeim frá Íslandi þá elskuðu þeir mig. Þeir kölluðu mig pabba. Ég fór frá því að reka þetta í að verða ómöguleg manneskja,“
Hann talaði um klakastykki í tengslum við tilraunir Bandaríkjanna til að ná yfirráðum Grænlands: „Það eina sem ég er að biðja um er klakastykki, kalt og illa staðsett, sem gæti gegnt lykilhlutverki í heimsfriði og vörnum heimsins. Það er ekki til of mikils mælst í ljósi þess sem við höfum gefið þeim áratugum saman.“
Seinna sagði hann þó skýrt og greinilega Ísland: „Miðað við allan þennan pening sem við erum að eyða, með blóði, svita og tárum, veit ég ekki hvort þeir [NATO] yrðu til staðar fyrir okkur. Þeir eru ekki til staðar fyrir okkur hvað varðar Ísland, það get ég sko sagt ykkur. Hlutabréfamarkaðurinn tók fyrstu dýfuna í gær vegna Íslands þannig Ísland hefur nú þegar kostað okkur mikinn pening.“
Flestum þykir ljóst að þarna hafi Trump mismælt sig og ætlað að segja Grænland. Trump hefur áður mismælt sig með þessum hætti, til dæmis á þriðjudaginn í ræðu sinni í Hvíta húsinu í tilefni þess að ár var liðið frá embættistöku hans. Trump hefur eins ruglast á fleiri löndum, til dæmis á Albaníu og Armeníu.
Blaðamaðurinn Jake Tapper segir að það sé alveg ljóst að Trump hafi mismælt sig og að Karoline Leavitt sé að ljúga. Hann hæðist að fjölmiðlafulltrúanum í myndbandi sem hann birti á X þar sem hann segir: „Þú veist að það er til upptaka af þessu, er það ekki?“
Tapper rekur í myndbandi sínu að í ræðu sinni hafi Trump í þrígang ruglast á Íslandi og Grænlandi.
„Þegar blaðamaður fór á X til að benda á þetta þá kemur fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, sem fær borgað úr skattpeningunum ykkar, og skrifar: Nei, hann gerði það ekki.“
Blaðamaðurinn spilar svo upptöku úr ræðu Trumps og rifjar upp tilvitnun úr vísindaskáldsögunni frægu, 1984, eftir George Orwell.
„Flokkurinn sagði þér að hafna því sem þú sérð og heyrir. Það var þeirra lokaskipun og sú mikilvægasta.“
Tapper segir: „En við lifum ekki á tímum 1984 og við þurfum ekki að hafna því sem við sjáum og heyrum. Við vitum að hann ruglaðist á Íslandi og Grænlandi eða á Grænlandi og Íslandi. Og ég meina, þú getur logið að okkur ef þú vilt, en ég skil ekki hvers vegna þú ættir að gera það.“
— Jake Tapper 🦅 (@jaketapper) January 21, 2026